Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

519/2019

Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2018, frá 5. desember 2018, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/415 frá 16. mars 2018 um frekari skyldur og verkefni fyrir tilvísunarrannsóknarstofu Evrópusambandsins fyrir rannsóknir á afríkuhrossapest og um breytingu á II. viðauka við tilskipun ráðsins 92/35/EBE, II. viðauka við tilskipun ráðsins 2000/75/EB og VII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6, frá 24. janúar 2019, bls. 53.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. maí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica