Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

474/2021

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/608 frá 14. apríl 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið og um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/608 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.