Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 18. maí 2019

457/2019

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæðum við Austurland, norðursvæði og miðsvæði.

1. gr.

Frá og með 18. maí 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæðum við Austurland, norðursvæði og miðsvæði, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

Austurland, norðursvæði:

  1. 65°00,00 N - 13°00,00 V
  2. 65°00,00 N - 15°00,00 V
  3. 65°30,00 N - 15°00,00 V
  4. 65°30,00 N - 13°00,00 V
  5. 65°00,00 N - 13°00,00 V

Austurland, miðsvæði:

  1. 64°40,00 N - 13°00,00 V
  2. 64°40,00 N - 15°00,00 V
  3. 65°00,00 N - 15°00,00 V
  4. 65°00,00 N - 13°00,00 V
  5. 64°40,00 N - 13°00,00 V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. maí 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.