Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

438/2019

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæðum við Austurland, suðursvæði og á Vestfjörðum. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 15. maí 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði á Vestfjörðum og við Austurland, suðursvæði, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

Vestfirðir:

  1. 66°00,00 N - 23°00,00 V
  2. 66°00,00 N - 25°00,00 V
  3. 66°30,00 N - 25°00,00 V
  4. 66°30,00 N - 24°00,00 V
  5. 66°00,00 N - 23°00,00 V

Austurland, suðursvæði:

  1. 64°20,00 N - 13°00,00 V
  2. 64°20,00 N - 15°00,00 V
  3. 64°40,00 N - 15°00,00 V
  4. 64°40,00 N - 13°00,00 V
  5. 64°20,00 N - 13°00,00 V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. maí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica