Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

431/2018

Reglugerð um (19.) breytingu á reglugerð nr. 258/2012, um rækjuveiðar innfjarða. - Brottfallin

1. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Lágmarksmöskvastærð rækjuvörpu skal vera 45 mm í vængjum aftur að þaki (miðneti) og 36 mm í öðrum hlutum vörpunnar. Við veiðar á rækju innfjarða skal nota net á legg í a.m.k. fjórum öftustu metrum vörpunnar eða smárækjuskilju, sbr. reglugerð um gerð og búnað smárækjuskilju. Um gerð og búnað vörpunnar vísast til reglugerðar um möskvastærðir og útbúnað varpna til veiða á botn­fiski, rækju og humri, með síðari breytingum.

Einnig er heimilt að nota í stað leggpoka eða smárækjuskilju þvernetspoka með fjórum byrðum felldan á línur. Við notkun leggpoka eða þverpoka er heimilt að nota þrjá síðumöskva fyrir framan kolllínumöskvana.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. apríl 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kristján Skarphéðinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica