Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

425/2018

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæðum í Faxaflóa og úti fyrir Austurlandi. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 4. maí 2018 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði í Faxaflóa og úti fyrir Austurlandi, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. Faxaflói:

  1. 64°06,00′N - 22°18,00′V
  2. 64°06,00′N - 22°49,20′V
  3. 64°21,00′N - 22°49,20′V
  4. 64°21,00′N - 22°18,00′V
  5. 64°06,60′N - 22°18,00′V

2. Austurland:

  1. 65°05,40′N - 13°20,00′V
  2. 65°05,40′N - 13°40,00′V
  3. 64°42,00′N - 14°00,00′V
  4. 64°42,00′N - 13°40,00′V
  5. 65°05,40′N - 13°20,00′V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2018. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1069/2017, um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði við Austurland.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. maí 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica