Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

423/2019

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 831/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 605/2010 um skilyrði varðandi heilbrigði dýra og manna og varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir vegna aðflutnings til Evrópusambandsins á hrámjólk og mjólkurafurðum til manneldis. - Brottfallin

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 9. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/588 frá 11. apríl 2019 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 605/2010 að því er varðar að færa Sam­ein­aða konungsríkið Stóra-Bretland og Norður-Írland og tilteknar hjálendur krúnunnar á skrá yfir þriðju lönd eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á sendingum af hrá­mjólk, mjólkurafurðum, broddi og afurðum, að stofni til úr broddi, sem ætluð eru til mann­eldis, til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breyt­ingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. maí 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica