Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

351/2018

Reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2018. - Brottfallin

1. gr.

Leyfi til veiða á makríl.

Þeim fiskiskipum, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða og hafa leyfi frá Fiskistofu til makrílveiða samkvæmt reglugerð þessari, er heimilt að stunda veiðar á makríl í fiskveiðilandhelgi Íslands og á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan lögsögu ríkja. Ráðherra er heimilt að fela Fiskistofu að fella úr gildi öll leyfi til makríl­veiða sé talin ástæða til að takmarka veiðarnar eða endurskipuleggja stjórnun þeirra.

Útgerðir skipa sem ætla að stunda veiðar á makríl skulu sækja um leyfi til Fiskistofu. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum 20. apríl 2018. Leyfi til makrílveiða skulu gefin út fyrir almanaksárið 2018.

Leyfilegur heildarafli íslenskra skipa í makríl á árinu 2018 er 134.772 lestir, þar með talinn afli sem fæst á samningssvæði NEAFC, utan lögsögu ríkja. Fari heildarafli umfram skilgreint magn ákveður ráðherra hvort veiðar á makríl skuli bannaðar.

Ráðstöfun leyfilegs heildarafla á árinu 2018 er sem hér segir (magn í lestum):

A B C D E
134.772 2.000 7.143 1.500 124.129

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Ráðstafað samkvæmt ákvæði til bráðabirgða nr. VIII við lög nr. 116/2006 um stjórn fisk­veiða.
  3. Ráðstafað samkvæmt ákvæði til bráðabirgða nr. XVI við lög nr. 116/2006 um stjórn fisk­veiða (5,3%).
  4. Skerðing vegna framsals til Rússlands.
  5. Fiskistofa úthlutar til skipa samkvæmt 2. gr.

Makríl í færeyskri lögsögu er einungis heimilt að veiða sem meðafla við veiðar á norsk-íslenskri síld. Heildarmakrílafli íslenskra skipa í færeyskri lögsögu skal ekki fara yfir 1.300 lestir. Fiskistofa til­kynnir ráðherra hvenær líklegt megi telja að aflanum verði náð. Ráðherra tilkynnir með aug­lýs­ingu frá hvaða tíma óheimilt er að veiða makríl sem meðafla innan færeyskrar lögsögu.

2. gr.

Skipting heildarafla á flokka skipa.

Viðmiðun leyfilegs heildarafla skal ráðstafað til skipa sem stunduðu veiðar á makríl á árunum 2007, 2008 eða 2009, sbr. 4. tl. 1. mgr. þessarar greinar, skipa sem fyrirhugað er að stundi veiðar skv 1. og 2. tl. 1. mgr. þessarar greinar og skipa sem öðluðust leyfi skv. 3. tl. 2. gr. reglugerðar nr. 233/2011. Ráðstafað er til skipa í einstökum flokkum, sem hér segir:

  1. 5.042 lestum skal ráðstafað til skipa sem hafa verið að veiðum á makríl með línu eða hand­færum samkvæmt sérstöku leyfi Fiskistofu, á grundvelli aflareynslu þeirra á almanaks­árunum 2010-2014. Auk þess til skipa sem veiddu með línu og handfærum 2009. Við ákvörðun afla­viðmiðunar hvers skips skal makrílafli almanaksáranna 2009-2012 hafa 43% aukið vægi umfram afla almanaksáranna 2013 og 2014. Skipum sem hafa leyfi samkvæmt þessum staflið er einungis heimilt að veiða makríl með línu eða handfærum.
  2. 6.654 lestum skal ráðstafað til skipa sem fengu leyfi skv. 2. tl. 2. gr. reglugerðar nr. 327/2013 eða reglugerðar nr. 376/2014 og ekki frysta afla um borð. Aflaheimildum þessum skal skipt á milli eftirfarandi stærðarflokka sem hér segir:
    1. Skip 200 BT og yfir.
    2. Skip undir 200 BT
    Hvert skip sem fellur undir a-lið skal fá í sinn hlut X lestir af makríl. Hvert skip sem fellur undir b-lið skal fá í sinn hlut 0,20 sinnum X lestir af makríl. X skal fundið með eftirfarandi jöfnu: aX + 0,20bX = 6.734 lestir (a er fjöldi skipa sem fellur undir a-lið; b er fjöldi skipa sem fellur undir b-lið). X skal þó aldrei vera hærra en 1.000 lestir.
    Við breytingar á skipastól skv. 2. mgr. þessarar greinar skal miða ráðstöfun aflaheimilda til nýs skips við stærðarflokkun (BT) eldra skips.
  3. 25.781 lestum skal ráðstafað til vinnsluskipa sem fengu leyfi skv. 3. tl. 2. gr. reglugerðar nr. 233/2011. Skipum skal skipt í þrjá flokka eftir stærð:
    1. Vinnsluskip sem mælast minni en 800 BT.
    2. Vinnsluskip sem mælast 800-2.400 BT.
    3. Vinnsluskip sem mælast stærri en 2.400 BT.
    Úthlutun á vinnsluskip sem falla undir a. flokk er 50% af úthlutun skipa sem falla undir b. flokk og úthlutun til skipa sem falla undir c. flokk er 50% meiri en til skipa sem falla undir b. flokk. Heildarúthlutun skv. þessu reiknast skv. eftirfarandi jöfnu:
    Nb×X+Na×X/2+Nc×X×1,5 = 26.093
    N= fjöldi skipa með leyfi til veiða á makríl í viðkomandi flokki,
    X= afli skips í b. flokki.
    Við breytingar á skipastól skv. 2. mgr. þessarar gr. skal miða ráðstöfun aflaheimilda til nýs skips við stærðarflokkun (BT) eldra skips.
  4. 86.652 lestum skal ráðstafað til skipa sem veitt hafa makríl í flottroll og nót á árunum 2007, 2008 og 2009 og skal skipt hlutfallslega miðað við aflareynslu þeirra á árunum 2007, 2008 til og með 11. júlí 2009, miðað við landaðan afla, að undanskildum sérstökum heimildum til veiða í lögsögu Færeyja.

Fiskistofa skal, heimila tilfærslu á viðmiðun aflareynslu, annarra réttinda og úthlutaðra aflaheimilda á milli fiskiskipa, að hluta til eða öllu leyti, þegar um er að ræða breytingu á skipastól. Það er skilyrði þessa að fyrir liggi samþykki eigenda beggja skipa fyrir tilfærslunni sé ekki um skip í eigu sömu útgerðar að ræða.

Ráðherra er heimilt að ráðstafa ónýttum heimildum milli flokka, megi ætla að skip í viðkomandi flokki muni ekki geta veitt það aflamagn sem tilgreint er í hverjum flokki. Við þá tilfærslu skulu njóta forgangs flokkar sem hafa lægra raðtölunúmer skv. 1. mgr. en sá flokkur sem flutt er frá, gefi veiði tilefni til.

Á árinu 2018 getur hvert skip aðeins öðlast eitt af veiðileyfum skv. 1.-4. tl. 1. mgr.

3. gr.

Takmörkun við framsali aflaheimilda.

Framsal aflaheimilda er heimilt eins og hér greinir:

  1. Heimilt er að flytja innan flokksins aflaheimildir milli skipa sem falla undir 1. tl. 1. mgr. 2. gr.
  2. Heimilt er að flytja aflaheimildir milli skipa sem falla undir 2.-4. tl. 1. mgr. 2. gr.
  3. Heimilt er að flytja allt að 10% af úthlutuðum heimildum fiskiskips frá árinu 2018 til ársins 2019.
  4. Hverju skipi er heimilt að veiða allt að 10% umfram úthlutaðar heimildir í makríl á árinu 2018 og dregst sá umframafli frá aflaheimildum þess á árinu 2019.
  5. Vegna óhjákvæmilegs meðafla er útgerðum skipa skv. 2.-4. tl. 1. mgr. 2. gr. heimilt að skipta á aflaheimildum í makríl og aflaheimildum í síld og kolmunna. Þó getur flutningur aldrei numið meiru en 15% af úthlutuðum heimildum skips í makríl, í þeim hlutföllum sem um semst.

4. gr.

Veiðitilhögun.

Makrílveiðar í flottroll eru ekki heimilar nær landi en 12 sjómílur frá viðmiðunarlínu. Þá eru makríl­veiðar í flottroll bannaðar á milli 65°30´N og 68°30´N milli 26°V og 17°V. Þá er heimilt að áskilja að flotvörpuveiðar á makríl skuli aðeins heimilaðar á tilteknu svæði ef varpan er búin með­afla­skilju. Makrílveiðar í net eru óheimilar.

Skipum sem hafa leyfi til makrílveiða er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar, sbr. reglugerð nr. 746/2016, um afladagbækur, með síðari breytingum. Þar skal fram koma m.a. veiðisvæði, veiðitími og afli í hverju togi. Sé makríll veiddur á línu eða handfæri er heimilt að færa fleiri en eina veiðiferð á hverja síðu í afladagbók. Skal Fiskistofu sent afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót eða eftir að veiðum lýkur. Ennfremur skal allur meðafli skráður nákvæm­lega.

Sé makríll veiddur í flottroll eða nót, skulu tekin sýni úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera að minnsta kosti 50 stk. af makríl, sem valin eru af handahófi. Gæta skal þess að sýni sé tekið í öllum tilkynningaskyldum reitum þar sem skipið stundar veiðar. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni, þegar að lokinni veiðiferð.

5. gr.

Fjarskiptabúnaður.

Fiskiskip sem stunda veiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti, með sjálfvirkum hætti, til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Land­helgis­gæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, sem miðlar gögnum til hlutað­eigandi stofnana.

Óheimilt er að halda til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest að fjar­skipta­búnaður starfi eðlilega. Skulu sendingar samkvæmt framangreindu hefjast þegar viðkom­andi skip lætur úr höfn og skal þeim ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til lönd­unar afla.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga bilar skal gert við hann svo fljótt sem mögulegt er, þó eigi síðar en að 30 dögum liðnum. Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á a.m.k. 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

6. gr.

Tilkynningar.

Um tilkynningar við makrílveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 285/2014, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætlaðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og fyrirhugaðan löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lágmarkstíma t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.

7. gr.

Vigtun og löndun.

Makrílafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Þó er heimilt með leyfi Fiskistofu að landa makrílafla og makrílafurðum í höfnum erlendis, enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar makríls utan íslenskra hafna til Fiskistofu, enda skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og hvert er áætlað magn makríls. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda makrílsins eða stað­fest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.

Um vigtun á makríl gilda ákvæði reglugerðar nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla, með síðari breytingum og ákvæði reglugerðar nr. 659/2014, um vigtun og skráningu meðafla á uppsjávarfiski, með síðari breytingum. Draga skal 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í makríl miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess. Sé makríll veiddur á línu eða handfæri skal afla haldið aðgreindum um borð í veiðiskipi eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun.

Landi skip frystum afurðum utan Íslands skal tilkynna um það í samræmi við ákvæði 5. kafla reglna Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) um fiskveiðieftirlit og framkvæmd þess.

Þegar makríll er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,26.

8. gr.

Eftirlit með veiðum.

Fiskistofa skal hafa eftirlit með því að ákvæði þessarar reglugerðar séu uppfyllt á hverjum tíma.

Sé fyrirhugað að stunda veiðar á bolfiski og makríl í sömu veiðiferð skal skipstjóri tilkynna það Fiski­stofu eigi síðar en tveimur virkum dögum fyrir upphaf makrílveiða.

9. gr.

Eftirlitskostnaður.

Kostnað vegna veru eftirlitsmanns um borð í skipi skal greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu. Útgerð skips skal sjá eftirlitsmanni Fiskistofu fyrir fæði og aðstöðu um borð í skipi án endurgjalds.

10. gr.

Refsingar og viðurlög.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út með stoð í henni varða viðurlögum sam­kvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79/1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands og laga nr. 151/1996, um veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breyt­ingum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála.

11. gr.

Lagaheimild, gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 295/2017 um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. apríl 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica