Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

337/2016

Reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2015/2016. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um strandveiðar, þar sem fenginn afli telst ekki til aflamarks eða króka­aflamarks, samkvæmt 6. gr. a í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

2. gr.

Strandveiðar.

Í maí, júní, júlí og ágúst 2016 er, að fengnu leyfi Fiskistofu, heimilt að veiða á handfæri allt að 9.000 lestir samtals af óslægðum botnfiski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr.

Leyfi til veiða.

Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða að fullnægðum ákvæðum 5. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Einungis er heimilt að veita hverri útgerð, eiganda, einstaklingi eða lögaðila, leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. Enginn eigenda lögaðila sem á bát með strandveiðileyfi getur átt aðild nema að einu strandveiðileyfi.

Eigandi fiskiskips skal vera lögskráður á skipið. Þegar fiskiskip er í eigu lögaðila er fullnægjandi að einn eigenda lögaðilans sé lögskráður á skipið. Í umsókn lögaðila um leyfi til strandveiða skulu koma fram upplýsingar um eignarhald á lögaðilanum og þann/þá sem koma til með að vera lög­skráðir á fiskiskip.

Óheimilt er að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða hafi aflamark í þorskígildum talið, umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á fiskveiðiárinu, verið flutt af því. Eftir útgáfu leyfis til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark þess árs umfram það sem flutt hefur verið til skips.

Við útgáfu Fiskistofu á leyfi til fiskiskips til handfæraveiða, samkvæmt reglugerð þessari, falla úr gildi önnur leyfi þess til að stunda veiðar til loka yfirstandandi fiskveiðiárs sem gefin eru út með stoð í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands.

4. gr.

Strandveiðisvæði.

Heimildir til strandveiða samkvæmt þessari reglugerð skiptast á fjögur svæði, sem eru:

  1. Eyja- og Miklaholtshreppur - Súðavíkurhreppur,
  2. Strandabyggð - Grýtubakkahreppur,
  3. Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur,
  4. Sveitarfélagið Hornafjörður - Borgarbyggð.

Í hlutdeild hvers svæðis koma heimildir í óslægðum botnfiski, í tonnum talið, sem hér segir:

Botnfiskur Maí Júní Júlí Ágúst
Svæði A 852 1.023 1.023 512
Svæði B 521   626   626 313
Svæði C 551   661   661 331
Svæði D 520   455   195 130

Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita skipi leyfi til strandveiða miðað við landsvæði þar sem útgerð skips á heimilisfesti samkvæmt þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og skal öllum afla veiðiskips landað innan þess landsvæðis. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu land­svæði á fiskveiðiárinu.

Náist ekki að veiða heimilaðan afla tiltekins landsvæðis í maí, júní eða júlí bætast ónýttar heimildir við aflaheimildir næsta mánaðar á eftir. Sama gildir að breyttu breytanda ef afli er umfram heim­ildir.

Fiskistofa skal stöðva veiðar á tilteknu svæði með auglýsingu, þegar sýnt er að leyfilegum heildar­afla verði náð, og skulu fiskiskip sem leyfi hafa á því svæði þá hætta veiðum.

5. gr.

Veiðar.

Leyfi til handfæraveiða samkvæmt reglugerð þessari eru bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Óheimilt er að stunda veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Þá eru strandveiðar bann­aðar á uppstigningardag, annan í hvítasunnu, 1. maí, 17. júní og á frídegi versl­unar­manna.
  2. Hver veiðiferð skal eigi standa lengur en 14 klukkustundir. Miðað er við þann tíma er fiskiskip lætur úr höfn til veiða til þess er það kemur til hafnar aftur til löndunar. Aðeins er heimilt að fara í eina veiðiferð á hverjum degi. Nái bátur ekki af óviðráðanlegum ástæðum, s.s. vegna vélarbilunar, til hafnar innan 14 klukkustunda frá upphafi veiðiferðar getur Fiski­stofa þó, að fengnum skýringum útgerðar, fallist á að skilyrði þessa töluliðar séu upp­fyllt.
  3. Skipstjóri skal tilkynna brottför úr höfn til vaktstöðvar siglinga handvirkt með talstöð um næstu strandstöð. Í tilkynningu skal ávallt koma fram úr hvaða höfn haldið er í veiðiferð. Fiskiskip skal hafa um borð sjálfvirkan fjareftirlitsbúnað og skal hin sjálfvirka skráning lögð til grundvallar við útreikning sóknar. Óheimilt er að fara í veiðiferð nema fjareftirlitsbúnaður um borð sé virkur. Bili búnaður í veiðiferð, skal strax tilkynna það til Landhelgisgæslu og halda tafarlaust til hafnar til löndunar.
  4. Aldrei er heimilt að hafa fleiri en fjórar handfærarúllur um borð. Engin önnur veiðarfæri en handfærarúllur skulu vera um borð.
  5. Á hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum, í hverri veiðiferð.
  6. Skylt er að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar og skal hann veginn og skráður endan­lega hér á landi.
  7. Fiskistofu er heimilt að krefjast gagna um eignarhald á lögaðila, aðgangs að ársreikningum og upplýsingum úr hlutafélagaskrá til að staðreyna skilyrði 3. mgr. 3. gr.

6. gr.

Viðurlög.

Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt VI. kafla laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 349/2015, um strandveiðar fisk­veiði­árið 2014/2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. apríl 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica