Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

318/2018

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur, sem tók gildi 19. október 2017 en kemur til framkvæmda 1. maí 2018, á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 5. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.

Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópusambandsins sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll: 

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

     

kg

%

kr./kg

0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst

01.05. - 31.12.18

99.333

0

0

0203

Svínakjöt, fryst

01.05. - 31.12.18

166.667

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, fryst

01.05. - 31.12.18

218.667

0

0

0208.9003

Rjúpur, frystar

01.05. - 31.12.18

66.667

0

0

ex 0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**)

01.05. - 31.12.18

33.333

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.05. - 31.12.18

36.667

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.05. - 31.12.18

50.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.05. - 31.12.18

66.667

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.05. - 31.12.18

80.000

0

0

(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ótilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið 0406 en auglýstum tollkvóta nemur, skal ráðherra úthluta tollkvóta vegna vöruliðarins eftir hlutkesti. Hver tilboðsgjafi skal þó að hámarki hljóta 15% af heildarmagni auglýsts tollkvóta ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

6. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. B, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. mars 2018.

 Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

 Ólafur Friðriksson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica