Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 12. ágúst 2021

306/2021

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 729/2020, um línuívilnun.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skal línuívilnun í þorski takmarkast við 1.131 tonn, 700 tonn af ýsu, 250 tonn af steinbít, 15 tonn af gullkarfa, 14 tonn af keilu og 50 tonn af löngu, miðað við óslægðan fisk, sem skiptast þannig innan fiskveiðiársins:

Tímabil Þorskur Ýsa Steinbítur Gullkarfi Keila Langa
1. september - nóvember 384 255 12 4 7 21
2. desember - 11. febrúar 355 224 38 2 2 9
3. 12. febrúar - maí 392 130 152 5 2 13
4. júní - ágúst 0 92 49 5 3 7
Samtals: 1.131 700 250 15 14 50

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. mars 2021.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.