Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

267/2017

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði við Austurland. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 3. apríl 2017 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði við Austurland sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 65° 05,40' N - 13° 21,00' V
  2. 65° 05,40' N - 13° 33,00' V
  3. 64° 43,20' N - 13° 53,40' V
  4. 64° 43,20' N - 13° 41,40' V
  5. 65° 05,40' N - 13° 21,00' V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. mars 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica