Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

228/2018

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1096/2017 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum samkvæmt viðaukum IVA og IVB við tollalög. - Brottfallin

1. gr.

Við töflu í 2. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi lína:

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollar Magntollar
Tollskrárnúmer:     kg % kr./kg
0704.9001 Hvítkál 05.03.-30.06.18 ótilgr. 0 0

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. febrúar 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Birgitta Kristjánsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica