Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

219/2018

Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á svínasíðum. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á svínakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993. 

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

  Vara Tímabil Verðtollur Magntollur
      % kr./kg
Tollskrárnr.: Svínakjöt, fryst:      
  -- Annað:      
ex0203.2902 Annað - svínasíður með beini 26.02. - 30.04.18 0 162
ex0203.2909 Annað - svínasíður beinlaust 26.02. - 30.04.18 0 205

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. apríl 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. febrúar 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Birgitta Kristjánsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica