Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

210/2021

Reglugerð um (103.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í II. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftir­taldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/376 frá 5. mars 2020 um leyfi fyrir norbixíni (annattó F) sem fóðuraukefni fyrir ketti og hunda. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 475.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/377 frá 5. mars 2020 um leyfi fyrir natríumselenati sem fóðuraukefni fyrir jórturdýr. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 478.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/378 frá 5. mars 2020 um leyfi fyrir L-levsíni sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 481.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/993 frá 9. júlí 2020 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa (EC 3.2.1.8), sem er framleiddur með Trichoderma reesei (BCCM/MUCL 49755), sem fóðuraukefni fyrir allar fuglategundir til eldis aðrar en eldiskjúklinga og skrautfugla, allar tegundir svína eftir fráfærur nema fráfærugrísi og allar tegundir svína til eldis nema eldissvín (leyfishafi er Berg und Schmidt GmbH Co. KG). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 513.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/994 frá 9. júlí 2020 um leyfi fyrir mónensíni og níkarbasíni (Monimax) sem fóðuraukefni fyrir eldiskalkúna, eldis­kjúklinga og kjúklinga sem eru aldir til að verða varphænur (leyfishafi er Huvepharma NV). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 516.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/995 frá 9. júlí 2020 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Aspergillus oryzae (DSM 26372), sem fóðuraukefni fyrir mjólkandi gyltur (leyfishafi er DSM Nutritional Products Ltd, fulltrúi er DSM Nutritional Products Sp. Z o.o). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 521.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/996 frá 9. júlí 2020 um leyfi fyrir blöndu af karvakróli, þýmóli, d-karvóni, metýlsalisýlati og L-mentóli sem fóður­aukefni fyrir eldiskjúklinga, kjúklinga sem eru aldir til að verða varphænur og aukategundir alifugla sem eru aldar til varps (leyfishafi er Biomin GmbH). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 524.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/997 frá 9. júlí 2020 um leyfi fyrir fljótandi L-lýsínbasa, L-lýsínsúlfati og tæknilega hreinu L-lýsínmónó-hýdróklóríði sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 527.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/998 frá 9. júlí 2020 um endurnýjun á leyfi fyrir astaxantíndímetýldísúksínati sem fóðuraukefni fyrir fiska og krabbadýr og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 393/2008. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 533.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1031 frá 15. júlí 2020 um leyfi fyrir bensósýru sem fóðuraukefni fyrir eldissvín (leyfishafi er DSM Nutritional Products Ltd, fulltrúi er DSM Nutritional Products Sp. Z o.o). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 536.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1032 frá 15. júlí 2020 um leyfi fyrir blöndu með Bacillus subtilis DSM 28343 sem fóðuraukefni fyrir kálfa til eldis og eldissvín (leyfishafi er Lactosan GmbH & Co. KG). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 539.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1034 frá 15. júlí 2020 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Aspergillus oryzae (DSM 26372), sem fóðuraukefni fyrir varphænur (leyfishafi er DSM Nutritional Products Ltd, fulltrúi er DSM Nutritional Products Sp. Z o.o). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 542.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. febrúar 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica