Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

193/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 344/2016 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 811/2013 frá 18. febrúar 2013, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar hitara fyrir rými, sambyggðra hitara, pakka með hitara fyrir rými, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku og pakka með sambyggðum hitara, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4c, 4e, 4i, 4j, 4k, 4l, 4m, 4n, 4s, 4t, 4o, 4p, 4q, 4r og 4u í kafla IV í II. viðauka og eftir liðum 11c, 11e, 11i, 11j, 11k, 11l, 11m, 11n, 11s, 11t, 11o, 11p, 11q, 11r og 11u í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2017, frá 27. október 2017, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/254 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010, (ESB) nr. 1060/2010, (ESB) nr. 1061/2010, (ESB) nr. 1062/2010, (ESB) nr. 626/2011, (ESB) nr. 392/2012, (ESB) nr. 874/2012, (ESB) nr. 1015/2010, (ESB) nr. 1016/2010, (ESB) nr. 327/2011, (ESB) nr. 206/2012, (ESB) nr. 665/2013, (ESB) nr. 811/2013, (ESB) nr. 812/2013, (ESB) nr. 65/2014, (ESB) nr. 1254/2014, (ESB) 2015/1094, (ESB) 2015/1186 og (ESB) 2015/1187 að því er varðar beitingu vikmarka í sannprófunaraðferðum.

2. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/254 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74/2017, 16. nóvember 2017, bls. 45.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. febrúar 2018.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.