1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007 frá 26. október 2007 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/949 um samþykki fyrir eftirliti tiltekinna þriðju landa fyrir útflutning á tilteknum matvælum að því er varðar tilvist tiltekins sveppaeiturs.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/949 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, með síðari breytingum.
6. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla brott reglugerð nr. 909/2012 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 844/2011 um samþykki fyrir eftirliti Kanada fyrir útflutning hveitis og hveitimjöls til að kanna hvort það inniheldur okratoxín A og auglýsing nr. 418/2013 um innflutningseftirlit með aflatoxín í jarðhnetum og afurðum úr þeim frá Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. febrúar 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Eggert Ólafsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)