Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

187/2016

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerða framkvæmdastjórnarinnar vegna aðflutnings matvæla til Evrópusambandsins sem eru ætluð á EXPO Milano 2015.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/329 um undanþágu frá ákvæðum Sambandsins varðandi heilbrigði dýra og manna að því er varðar aðflutning matvæla úr dýraríkinu til Evrópusambandsins sem eru ætluð á EXPO Milano 2015 í Mílanó (Ítalíu).
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/448 um sértækar dýraheilbrigðisreglur vegna aðflutnings tiltekinna matvæla úr dýraríkinu til Sambandsins frá Japan sem eru ætluð á EXPO Milano 2015.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar, sem taldar eru upp í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi gildir með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli og lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

5. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. febrúar 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.