Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

163/2020

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 423/2015 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 579/2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/978 frá 14. júní 2019 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 579/2014 um undanþágu frá tilteknum ákvæðum II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 að því er varðar flutning á fljótandi olíum og fitu á sjó. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 290/2019, frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 30. janúar 2020, bls. 284.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. febrúar 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.