Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

126/2018

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 97/2018 um loðnuveiðar færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2017/2018. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Færeyskum skipum er heimilt að veiða samtals 14.250 lestir af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands.

2. gr.

2. ml. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Eftir 17. febrúar 2018 er að hámarki heimilt að landa 4.750 lestum af kvótanum til mann­eldis­vinnslu utan Íslands eða vinna til manneldis um borð.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2018.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica