1. gr.
1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Færeyskum skipum er heimilt að veiða samtals 14.250 lestir af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands.
2. gr.
2. ml. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Eftir 17. febrúar 2018 er að hámarki heimilt að landa 4.750 lestum af kvótanum til manneldisvinnslu utan Íslands eða vinna til manneldis um borð.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2018.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.