Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2022

101/2021

Reglugerð um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski árið 2021 innan efnahagslögsögu Noregs.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til framkvæmdar samnings milli Íslands, Noregs og Rússlands frá 15. maí 1999 um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs ásamt tvíhliða bókunum við hann frá sama degi milli Íslands og Noregs annars vegar og Íslands og Rússlands hins vegar.

2. gr.

Allar veiðar á Norðuríshafsþorski innan efnahagslögsögu Noregs eru háðar sérstöku leyfi Fiskistofu. Veiðar á Norðuríshafsþorski, skv. þessari reglugerð, eru aðeins heimilar innan efnahagslögsögu Noregs og miðast leyfi Fiskistofu við nýtingu þessara veiðiheimilda. Aðeins þau skip, sem hafa aflamark í Norðuríshafsþorski, á árinu 2021, eiga kost á veiðileyfi, samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr.

Fiskistofa skal úthluta aflamarki í þorski til einstakra skipa í efnahagslögsögu Noregs. Aflamark einstaks skips á svæðinu ræðst af aflahlutdeild þess.

4. gr.

Innan efnahagslögsögu Noregs, norðan við 62°00ʹ N og utan 12 sjómílna frá grunnlínum, er leyfilegur heildarafli í óslægðum Norðuríshafsþorski sem hér segir:

A B C
Lestir Lestir Lestir
4.040 214 3.826
  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

Að auki er heimilt við þorskveiðarnar að hafa allt að 30% meðafla af öðrum tegundum. Þó má karfi ekki vera nema 20% í hverju togi og 20% af lönduðum þorskafla og grálúða má ekki vera meiri en 12% í hverju togi og ekki meiri en 7% af lönduðum þorskafla.

Í hverri veiðiferð innan efnahagslögsögu Noregs, skal afli af öðrum tegundum en þorski, ekki vera meiri samtals en sem nemur 30% af þorskafla, miðað við afla upp úr sjó.

5. gr.

Um veiðar í efnahagslögsögu Noregs fer samkvæmt reglum, sem settar eru af stjórnvöldum í Noregi, m.a. varðandi eftirlitsmenn um borð í veiðiskipum, svæðalokanir, möskvastærðir og tilkynningar. Íslenskum skipum er óheimilt að stunda loðnuveiðar í Barentshafi.

Ekki skulu fleiri en 15 íslensk skip stunda veiðar samtímis innan efnahagslögsögu Noregs.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar í efnahagslögsögu Noregs sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að hefja veiðiferð í efnahagslögsögu Noregs, fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 3. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða skipsins á 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

6. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark í Norðuríshafsþorski milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt 12. gr. og 15. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða án tillits til 11. gr. og 5. og 7. mgr. 15. gr. laganna.

7. gr.

Að fengnu leyfi Fiskistofu er heimilt í sömu veiðiferð að stunda veiðar á Norðuríshafsþorski og veiðar innan íslenskrar efnahagslögsögu að því tilskildu að öllum afla þeirrar veiðiferðar sé landað í íslenskri höfn. Fyrir upphaf hverrar veiðiferðar, skv. reglugerð þessari, skal skipstjóri tilkynna sérstaklega til Eftirlitsstöðvarinnar hvenær veiðiferð hefst. Þá skal tilkynna til Eftirlitsstöðvarinnar þegar veiðar hefjast innan efnahagslögsögu Noregs og þegar þeim lýkur hverju sinni. Þar skal koma fram áætlað magn og samsetning afla um borð, miðað við afla upp úr sjó og áætlaður löndunarstaður og -tími. Um tilkynningar varðandi veiðar innan efnahagslögsögu Noregs fer samkvæmt reglum norskra stjórnvalda um rafræna afladagbók.

Skipstjórum er skylt að halda afladagbækur, sbr. reglugerð um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga nr. 298/2020.

8. gr.

Heimilt er, að fengnu leyfi Fiskistofu, að landa afla í höfnum í Noregi, enda séu skilyrði Fiskistofu um eftirlit með vigtun og skýrsluskil uppfyllt. Sækja skal um leyfi til löndunar í norskum höfnum til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina hvar hann hyggst landa aflanum ásamt áætluðu magni. Áætli skip komu til hafnar samningsaðila NEAFC með afla af samningssvæði NEAFC, hvort heldur til löndunar, umskipunar eða til að leita þjónustu að öðru leyti, skal tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnarríkinu í samræmi við reglur NEAFC um hafnarríkiseftirlit og framkvæmd þess. Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC, https://psc.neafc.org). Frekari upplýsingar má finna á slóðinni https://psc.neafc.org/designated-contacts.

Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri senda Fiskistofu staðfest afrit af vigtarnótu. Reglugerð um vigtun sjávarafla á við að öðru leyti.

Þegar afli er unninn um borð í veiðiskipi skal við útreikning á veiddum afla ekki miða við mælda nýtingu um borð í veiðiskipi heldur nýtingarstuðla, sem gefnir eru út af viðkomandi stjórnvöldum í Noregi.

Þegar Norðuríshafsþorskur reiknast til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 1.

9. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

10. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 185/2020, um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski árið 2020 innan efnahagslögsögu Noregs.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.