1. gr.
Á eftir 38. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 38. gr. A, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Vigtun á sjávargróðri.
Við vigtun á þörungum (þangi og þara) í atvinnuskyni skal afli veginn (blautvigt) á hafnarvog, nema gefið sé heimavigtunarleyfi. Hagnýta skal aðra hvora eftirgreindra aðferða:
A) | Pokavigtun. Vigtun á pokum við löndun. Færa skal skráningu á einstök skip þ.m.t. sláttupramma. | |
B) | Safnvigtun. Vigtun í lausu máli frá skipi við löndun. Í þessum tilvikum skal áætla aflamagn hvers skips þ.m.t. pramma við vigtunina. |
Að auki skal skrá uppruna þangsins eftir heitum fasteigna (eða landnúmeri).
Óheimilt er að framkvæma endurvigtun á þörungum. Heimilt er að færa afla milli skipa við söfnun á sjó.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 og lögum um umgengni um nytjastofna sjávar nr. 57/1996 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. janúar 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Arnór Snæbjörnsson.