1. gr.
Frá og með 2. febrúar 2020 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði í Faxaflóa, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til þess að öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2020.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. janúar 2020.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.