Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2021

60/2020

Reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl.

I. KAFLI Gildissvið.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um gjöld fyrir þjónustu Hugverkastofunnar í tengslum við réttindi sem veitt eru á grundvelli laga nr. 17/1991 um einkaleyfi (ell.), nr. 45/1997 um vörumerki (vml.), nr. 155/2002 um félagamerki (fml.) og nr. 46/2001 um hönnun (hl.).

Gjöld greiðast Hugverkastofunni nema annað sé tekið fram. Gjöld samkvæmt reglugerð þessari verða ekki endurgreidd.

II. KAFLI Einkaleyfi.

2. gr. Einkaleyfisumsóknir.

Fyrir umsóknir um einkaleyfi skal greiða þegar við á:

1. Gjald fyrir umsókn um einkaleyfi, yfirfærða alþjóðlega einkaleyfisumsókn eða beiðni um endurmat skv. 38. gr. ell.: kr.
a. umsóknargjald 66.100
b. viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu 4.300
2. Gjald skv. 36. og 37. gr. ell. 56.600
3. Viðbótargjald vegna viðbótarfrests til að leggja inn tilskilda þýðingu vegna yfirfærðrar umsóknar 17.800
4. Umsýslugjald fyrir milligöngu við nýnæmisrannsókn hjá alþjóðlega viðurkenndri stofnun 7.700

Fyrir hlutun eða úrfellingu skal greiða umsóknargjald skv. 1. tl. 1. mgr. auk árgjalda skv. 3. gr. í samræmi við 2. mgr. 41. gr. ell.

3. gr. Árgjöld.

Árgjöld fyrir einkaleyfisumsóknir og einkaleyfi eru sem hér segir:

Gjaldár kr. Gjaldár kr. Gjaldár kr.
1. 11.300 8. 18.900 15. 39.600
2. 11.300 9. 21.300 16. 43.700
3. 11.300 10. 23.600 17. 49.000
4. 13.100 11. 26.000 18. 53.800
5. 14.200 12. 28.300 19. 59.000
6. 15.400 13. 31.300 20. 64.900
7. 17.200 14. 35.400

Gjalddagi vegna 3. gildistímabils einkaleyfis skv. 2. mgr., er sá almanaksdagur í upphafi tímabilsins sem svarar til útgáfudags einkaleyfisins.

Árgjald, sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga skal hækka um 20%.

4. gr. Útgáfa einkaleyfis.

Fyrir útgáfu einkaleyfis skal greiða þegar við á:

kr.
1. Útgáfugjald fyrir fyrstu 40 blaðsíður einkaleyfisskjals (lýsing, einkaleyfiskröfur, teikningar og ágrip) 28.300
2. Viðbótargjald fyrir hverja síðu umfram 40 1.200
3. Viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu sem bætt er við eftir innlagningu umsóknar 4.300
4. Gjald fyrir endurútgáfu einkaleyfis 28.300
5. Gjald fyrir leiðréttingu á kröfum einkaleyfis og endurútgáfu 28.300

5. gr. Evrópsk einkaleyfi.

Fyrir evrópsk einkaleyfi, svo sem staðfestingu einkaleyfis, endurútgáfu eða fyrir útgáfu leiðréttrar þýðingar greiðast kr. 31.900

6. gr. Viðbótarvottorð.

Vegna umsóknar um viðbótarvernd og útgáfu viðbótarvottorðs skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Umsóknargjald 66.100
2. Gjald fyrir framlengingu á viðbótarvottorði 49.000
3. Árgjald fyrir hvert byrjað gjaldár viðbótarvottorðs 64.900

Árgjald skv. 2. tl. 1. mgr., sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga, hækkar um 20%.

7. gr. Takmörkun á verndarsviði og andmæli.

Gjald fyrir beiðni um takmörkun á verndarsviði einkaleyfis kr. 28.300
Tilkynning um andmæli gegn einkaleyfi kr. 42.500

III. KAFLI Vörumerki og félagamerki.

8. gr. Umsókn eða endurnýjun merkis.

Fyrir umsókn um skráningu merkis eða endurnýjun þess skal greiða eftirtalin gjöld þegar við á:

kr.
1. Umsóknar- eða endurnýjunargjald, einn vöru- eða þjónustuflokkur innifalinn 33.100
2. Viðbótargjald fyrir hvern vöru- og/eða þjónustuflokk umfram einn 7.100
3. Gjald fyrir hverja mynd umfram eina í umsókn þegar merkið er í þrívídd 3.600

Gjöld fyrir tilnefningu á Íslandi í umsókn um alþjóðlega skráningu vörumerkis eða vegna endurnýjunar þeirra eru greidd til Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO).

9. gr. Breyting á merki eða beiðni um hlutun.

Beiðni um breytingu á skráðu merki kr. 7.100
Beiðni um hlutun umsóknar eða skráningar kr. 21.300

10. gr. Andmæli og afnám skráningar.

Tilkynning um andmæli eða krafa um að skráning merkis verði felld úr gildi kr. 42.500

11. gr. Ruglingshættuleit.

Leit í vörumerkjaskrá að sambærilegu merki kr. 6.000

Útheimti beiðni um leit skv. 1. mgr. verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 18. gr. eftir því sem við á.

IV. KAFLI Hönnun.

12. gr. Umsókn um skráningu eða endurnýjun hönnunar.

Fyrir umsókn um skráningu hönnunar skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Umsóknargjald fyrir hvert fimm ára tímabil 17.800
2. Umsóknargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil 7.700
3. Gjald fyrir hverja mynd umfram eina 4.300
4. Rannsóknargjald 11.300

Ef óskað er eftir því við innlagningu umsóknar að skráning hönnunar gildi í fleiri en eitt tímabil í senn skal greiða umsóknargjald fyrir hvert tímabil sem skráningunni er ætlað að ná yfir.

Fyrir endurnýjun á skráningu hönnunar skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Endurnýjunargjald fyrir hvert fimm ára tímabil 22.500
2. Endurnýjunargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil 7.700

13. gr. Brottfall skráningar.

Gjald vegna kröfu um að skráning verði felld úr gildi kr. 13.100

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

14. gr. Umsýsla alþjóðlegra umsókna.

Umsýslugjald fyrir móttöku og meðhöndlun alþjóðlegrar einkaleyfis-, vörumerkja- eða hönnunarumsóknar kr. 17.800

15. gr. Endurupptaka og endurveiting réttinda.

Gjald fyrir beiðni um endurupptöku kr. 11.300
Gjald fyrir meðhöndlun beiðni um endurveitingu réttinda til einkaleyfis eða hönnunar kr. 42.500

16. gr. Innfærsla í málaskrá.

Gjald fyrir beiðni um innfærslu upplýsinga um aðilaskipti, nytjaleyfi eða veðsetningu kr. 7.100
Gjald fyrir beiðni um aðrar innfærslur í málaskrá, s.s. breyting á nafni eða heimilisfangi umsækjanda eða breytingar varðandi umboðsmann kr. 3.600

17. gr. Afrit af gögnum í málaskrá.

Fyrir afrit af aðgengilegum gögnum úr málaskrá skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Rafrænt afrit af umsókn eða af veittu einkaleyfi, skráðu merki eða hönnun eða öðrum skjölum úr skjalavistunarkerfi 1.200
2. Staðfest afrit af skjölum skv. 1. tl. eða útgáfa forgangsréttarskjals 4.800
3. Útprentun eða ljósritun gagna, hver síða í stærðinni A4 200

Ef beiðni um afrit skv. 1. mgr. útheimtir verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 18. gr. eftir því sem við á.

18. gr. Þjónustuverkefni.

Fyrir þjónustu, sem verður ekki heimfærð undir einingarverð reglugerðarinnar, svo sem umfangsmikla leit, athuganir, úrvinnslu eða tölvuútskriftir, greiðist tímagjald kr. 7.100

19. gr. ELS-tíðindi.

Áskriftargjald á ári kr. 4.300
Útprentun, hvert eintak kr. 500

20. gr. Áfrýjun.

Gjald vegna áfrýjunar á grundvelli laga um einkaleyfi, vörumerki, hönnun eða félagamerki kr. 85.000

Áfrýjunargjald greiðist ráðuneytinu við afhendingu bréfs um áfrýjun.

Sé mál afturkallað áður en áfrýjunarnefnd er fullskipuð, málinu vísað frá áfrýjunarnefnd eða það vinnst skal ráðuneytið endurgreiða 65.000 kr.

VI. KAFLI Lokaákvæði.

21. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, 63. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki, 36. gr. og 53. gr. laga nr. 46/2001 um hönnun og 9. gr. laga nr. 155/2002 um félagamerki og öðlast gildi 1. maí 2020.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 818/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. janúar 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Sigrún Brynja Einarsdóttir.

Daði Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.