Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

31/2017

Reglugerð um bann við veiðum á ígulkerjum á veiðisvæði í innanverðum Breiðafirði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 22. janúar 2017 eru allar veiðar á ígulkerjum óheimilar á veiðisvæði í innanverðum Breiðafirði. Svæðið afmarkast í austur og suður út frá punktinum 65°10'N og 22°40'V og að landi. Veiðisvæðin Breiðasund og Hvammsfjörður falla þar undir.

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. janúar 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Baldur P. Erlingsson.

Hinrik Greipsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica