Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

20/2016

Reglugerð um starfsreglur Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna styrkveitinga. - Brottfallin

1. gr.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða starfar á grundvelli laga nr. 75/2011. Sjóðurinn heyrir undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Sjóðurinn er í vörslu Ferðamálastofu sem annast rekstur hans, þ.m.t. framkvæmd úthlutana úr sjóðnum og samskipti við styrkþega, upplýsingamiðlun, uppgjör, bókhald og gerð ársreikninga.

Ráðherra skipar fjóra fulltrúa í stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til tveggja ára í senn. Skulu tveir skipaðir eftir tilnefningu Samtaka ferðaþjónustunnar, einn eftir tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og einn án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður.

2. gr.

Hlutverk sjóðsins.

Hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferða­manna­staða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins, óháð því hvort ferða­manna­staður er í opinberri eigu eða á einkalandi. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomu­stöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

3. gr.

Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.

Stjórn sjóðsins gerir að jafnaði tvisvar á ári tillögur til ráðherra um úthlutanir úr sjóðnum.

Áður en auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum tekur stjórnin afstöðu til þess hvort aug­lýst skuli sérstaklega eftir styrkumsóknum í tiltekna flokka verkefna og skal þess þá getið í aug­lýsingu.

Einnig hefur stjórn sjóðsins frumkvæði að öflun upplýsinga frá yfirvöldum umhverfis- og ferðamála og öðrum hagsmunaaðilum um þörf á framkvæmdum á ferðamannastöðum og forgangsröðun framkvæmda. Auk þess getur stjórnin farið í vettvangsferðir á ferðamannastaði, telji hún þörf á því, og stuðlað að auknu samstarfi hagsmunaaðila um uppbyggingu og verndun ferðamannastaða ef við á. Kostnaður við vettvangsferðir greiðist af sjóðnum.

Stjórn sjóðsins fylgist reglulega með stöðu sjóðsins og framvindu verkefna á grundvelli upplýsinga frá Ferðamálastofu og bregst við ef veruleg frávik verða vegna einstakra verkefna, í samræmi við verkferla við framkvæmd styrkveitinga úr sjóðnum.

Stjórn sjóðsins skal halda fundargerðir um fundi sína og skulu þær undirritaðar af þeim sem fundinn sitja. Fundargerðir stjórnar skal birta á heimasíðu Ferðamálastofu.

4. gr.

Hlutverk Ferðamálastofu.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er í vörslu Ferðamálastofu sem annast rekstur sjóðsins. Ferðamálastofa annast framkvæmd úthlutana úr sjóðnum, undirbýr auglýsingu um styrkveitingar, móttöku umsókna og flokkun þeirra, samskipti við umsækjendur, samningsgerð við styrkþega og miðlun upplýsinga um úthlutanir og starfsemi sjóðsins. Einnig annast Ferðamálastofa uppgjör, bók­hald og gerð ársreikninga fyrir sjóðinn.

Hlutverk Ferðamálastofu er:

  1. Skipuleggur starfsemi sjóðsins og annast rekstur hans.
  2. Þjónusta við stjórn sjóðsins vegna lögbundins hlutverks hennar á sviði tillagnagerðar til ráðherra:
    1. Undirbýr og boðar til funda í stjórn sjóðsins og ritar fundargerðir í samráði við for­mann og ferðamálastjóra.
    2. Annast kynningu á sjóðnum, útbýr kynningarefni og upplýsingar um starfsemi hans, úthlutunarstefnu, áherslur, fresti og skilyrði og auglýsir eftir umsóknum.
    3. Sér um að faglegt mat á umsóknum fari fram.
  3. Annast afgreiðslu styrkja, samningagerð við styrkþega og eftirfylgni styrkúthlutana.
  4. Metur framvinduskýrslur og fullnustu samninga.
  5. Sér um verkefnabókhald og tilheyrandi reikningshald í samvinnu við ráðuneytið og í samráði við verklagsreglur um sjóðinn.

Ferðamálastofa fylgist með framvindu verkefna og bregst við ef veruleg frávik verða vegna ein­stakra verkefna, í samræmi við verkferla við framkvæmd styrkveitinga úr sjóðnum.

Ferðamálastofa skal, að lágmarki tvisvar á ári, skila ráðuneytinu skýrslu um stöðu sjóðsins ásamt yfirliti yfir styrkþega, veitta styrki og stöðu verkefna.

Ferðamálastofa upplýsir stjórn sjóðsins og eftir atvikum ráðuneytið ef veruleg frávik verða frá verk- eða framkvæmdaáætlun einstakra verkefna.

Ferðamálastofa annast gerð ársreiknings sjóðsins í samstarfi við stjórn hans, fyrir maí ár hvert. Ár hvert gerir Ferðamálastofa grein fyrir starfsemi sjóðsins í ársskýrslu sinni. Þar skal koma fram yfirlit um starfsemina á liðnu ári, þar sem m.a. er fjallað um árangur með hliðsjón af markmiðum og starfsemi sjóðsins og helstu atriði sem framundan eru í starfseminni.

5. gr.

Styrkhæf verkefni.

Skv. 2. og 3. mgr. 1. gr. laga nr. 75/2011 skal sjóðurinn sinna hlutverki sínu með því að veita fjár­magni til:

  1. uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum,
  2. framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila, og
  3. undirbúnings- og hönnunarvinnu sem nauðsynleg er vegna framkvæmda sem talin eru upp í a- og b-lið.

Mótframlag styrkhafa miðast að jafnaði við 20% þegar styrkhafi er sveitarfélag eða einkaaðili. Mótframlag getur verið í formi beinna útgjalda eða vinnuframlags. Styrkir til svæða í eigu eða umsjón ríkisins eru veittir án kröfu um mótframlag.

Styrkir til einstakra verkefna eru að jafnaði ekki veittir til lengri tíma en eins árs. Þó getur stjórn sjóðsins ákveðið að leggja til við ráðherra að styrkur skuli veittur til lengri tíma sé verkefnið þess eðlis að það taki lengri tíma en eitt ár að ljúka framkvæmd þess.

6. gr.

Takmarkanir á styrkveitingum.

Framkvæmdasjóði ferðamannastaða er ekki heimilt að:

  1. Veita framlög til rekstrarkostnaðar mannvirkja, náttúruverndarsvæða eða annarra ferða­manna­staða.
  2. Veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.
  3. Styrkja atvinnuuppbyggingu einkaaðila í ferðaþjónustu, umfram verkefni, sbr. b-lið 1. mgr. 5. gr.
  4. Styrkja fyrirtæki sem hafa með höndum rekstur ferðamannastaða umfram þá hámarks­upphæð sem leyfilegt er samkvæmt reglugerð ESB nr. 1998/2006 um minni­háttar­aðstoð (de minimis reglu), nú að hámarki € 200.000 á hverju 36 mánaða tímabili að frádregnum öðrum styrkjum frá opinberum sjóðum sem viðkomandi hefur fengið til sömu verkefna á sama tímabili.
  5. Greiða fastan launakostnað umsækjenda, sbr. þó 2. mgr. 9. gr.

7. gr.

Flokkun umsókna.

Umsóknir um styrkhæf verkefni skulu flokkaðar í þrjá meginflokka eftir eðli þeirra og umfangi:

  1. Undirbúning: Skipulagsáætlanir s.s. deiliskipulag, umhverfisskipulag og önnur skipulags­vinna.
  2. Hönnun mannvirkja, ferðamannastaða, ferðamannaleiða og annars sem til þarf til að tryggja aðgengi og öryggi ferðamanna og/eða verndun náttúrunnar. Verkefni sem hér eru undir skulu að öllu jöfnu hafa aðgengi fyrir alla og sjálfbærni að leiðarljósi að svo miklu leyti sem hægt er.
  3. Framkvæmd: Varanleg mannvirkjagerð eða endurbætur mannvirkja og uppsetning skilta og annarra merkinga. Til þessa flokks verkefna teljast m.a. ferðamannaleiðir og áningarstaðir.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggur áherslu á að veita styrki í varanlegar langtímalausnir sem byggja á vandaðri hönnun. Að öllu jöfnu er ekki gert ráð fyrir að sjóðurinn veiti fjármagni til uppsetningar skyndilausna nema ef um undantekningartilvik er að ræða þar sem mjög brýna nauðsyn ber til og þá sem undanfara varanlegrar mannvirkjagerðar eða í kjölfar náttúruhamfara.

8. gr.

Umsóknartímabil.

Styrkjum úr sjóðnum er að jafnaði úthlutað tvisvar á ári. Auglýsa skal eftir umsóknum í fjölmiðlum og á heimasíðum Ferðamálastofu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Heimilt er að auglýsa sérstaklega eftir styrkumsóknum í tilteknum flokki verkefna og skal þess þá getið í auglýsingu.

9. gr.

Umsóknir og fylgigögn.

Allar umsóknir skulu vera rafrænar. Umsóknum skal fylgja:

  1. Verkefnalýsing sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti. Æskilegt er að í lýsingu komi fram markmið verkefnis eða aðgerðir sem stefnt er að og hvernig þær falla að hlutverki Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.
  2. Sundurgreind kostnaðar-, verk- og framkvæmdaáætlun (tímasett), sbr. umsóknareyðublöð.
  3. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins.
  4. Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa.
  5. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila.
  6. Yfirlit yfir aðra opinbera styrki sem sama verkefni hefur fengið sl. 36 mánuði.

Þeim gögnum sem ekki er unnt að skila rafrænt skal skilað skriflega til Framkvæmdasjóðs ferða­manna­staða, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík.

Áætlun um heildarfjármögnun verkefnis, þar með talin eigin mótframlög og/eða frá öðrum, skal koma fram í kostnaðaráætlun og skal hún staðfest við gerð samnings ef umsókn er samþykkt.

10. gr.

Mat á umsóknum.

Við mat á umsóknum er lögð áhersla á mikilvægi verkefnis m.t.t. verndunar náttúru og öryggis ferðamanna. Jafnframt er litið til sjálfbærnisjónarmiða við samþættingu nýtingar og verndunar svæða og þeirrar þjónustu sem veitt skal innan þeirra til lengri tíma litið, almenningi og ferða­mönnum til hagsbóta. Þá þurfa verkefni að falla að markmiðum laga um Framkvæmdasjóð ferða­manna­staða og þeim opinberu áætlunum sem í gildi eru á hverjum tíma, ásamt því að uppfylla ákvæði laga og reglugerða er varða náttúru- og minjavernd og annarra laga eftir því sem við á.

Sjóðurinn getur óskað eftir umsögn eða upplýsingum frá hlutaðeigandi sveitarstjórn og öðrum opinberum aðilum um styrkumsókn, þegar þörf þykir á.

Umsóknir skulu flokkaðar í fjóra flokka:

  1. Styrkhæf umsókn sem uppfyllir mjög vel kröfur sjóðsins - afburða gott verkefni.
  2. Styrkhæf umsókn sem uppfyllir vel kröfur sjóðsins - mjög gott verkefni.
  3. Styrkhæf umsókn sem uppfyllir kröfur sjóðsins - gott verkefni.
  4. Umsóknir sem uppfylla ekki kröfur sjóðsins eða falla utan verksviðs sjóðsins.

Stjórn sjóðsins getur ákveðið að gera ekki tillögu til ráðherra um að veita styrk til tiltekins verk­efnis, sem uppfyllir að öðru leyti kröfur samkvæmt þessari grein, af þeirri ástæðu að umsækj­andi hafi ekki staðist kröfur sjóðsins við framkvæmd fyrri verkefna, svo sem ef framvindu- eða lokaskýrslu hefur ekki verið skilað þrátt fyrir ítrekun af hálfu sjóðsins eða ef stjórn sjóðsins metur það svo að umsækjandi muni ekki ná að nýta umbeðinn styrk vegna annarra verkefna sem hann er þegar með í vinnslu á grundvelli styrkja úr sjóðnum.

11. gr.

Tillögugerð.

Ferðamálastofa leggur styrkumsóknir fyrir stjórn sjóðsins ásamt mati á styrkhæfni umsókna, sbr. 10. gr. Stjórn sjóðsins er ætlað að gera heildstæðar tillögur til ráðherra um samþykki eða synjun umsókna. Stjórn sjóðsins ber ábyrgð á tillögugerðinni.

Rökstuðnings fyrir tillögum stjórnar sjóðsins skal getið í fundargerð þess fundar þar sem ákvörðun um tillögur til ráðherra eru teknar.

Tillögur stjórnar eru sendar ráðherra með rafrænum hætti ásamt eftirfarandi fylgigögnum:

  1. Tillögur til samþykktar og synjunar.
  2. Heildaryfirlit umsókna, þ.m.t. greinargerð þar sem gerð er grein fyrir verkefnum og kostn­aðar­áætlun.
  3. Auglýsing umsókna.

Óski styrkhafi eftir því að gera breytingar á verkefni sem ekki teljast verulegar getur Ferða­mála­stofa veitt samþykki. Ef beiðni felur í sér verulegar breytingar á forsendum verkefnis skal Ferða­mála­stofa leggja erindið fyrir stjórn sjóðsins. Stjórnin skal leggja mat á forsendur breyt­ing­anna og leggja fyrir ráðherra til samþykktar eða synjunar ef þörf þykir á.

12. gr.

Úthlutanir.

Ráðherra tekur ákvörðun um einstakar úthlutanir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á grund­velli tillagna stjórnar. Um veitingu styrkja og málsmeðferð gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Upp­lýs­ingar um úthlutanir úr sjóðnum skal birta opinberlega.

Ákvarðanir ráðherra eru sendar með rafrænum hætti til Ferðamálastofu sem sér um framkvæmd úthlutana. Um málsmeðferð fer samkvæmt stjórnsýslulögum.

13. gr.

Greiðsla styrks og mat á framvindu verkefna.

Styrkur greiðist út til styrkþega í samræmi við samþykkta kostnaðar-, verk- og fram­kvæmdar­áætlun, sbr. b-lið 9. gr. Greiðsla vegna 1. áfanga, þó eigi hærri en 40% af styrk­upphæð, greiðist við undirritun samnings. Áður en til frekari greiðslna kemur skal styrkþegi skila inn fram­vindu­skýrslu fyrir hvern áfanga í framkvæmdaráætlun. Ef styrkfjárhæð er lægri en 2 milljónir króna eða verktími stuttur greiðist styrkur í tveimur greiðslum, við undirritun samnings og eftir að loka­skýrslu, sem jafnframt er framvinduskýrsla, hefur verið skilað og hún yfirfarin.

Samningum um styrki skal lokið og þeir undirritaðir innan þriggja vikna frá því að ákvörðun um styrkveitingu er tilkynnt styrkþega eða eins fljótt og unnt er. Styrkþega ber að skila inn fram­vindu­skýrslu og lokaskýrslu, ásamt greinargerð um eigið framlag sem telst hluti af heildar­kostnaði, innan þess frests sem tilgreindur er í samningi. Hafi samningur, framvindu- eða loka­skýrsla ekki borist fyrir tilsettan tíma, fellur styrkurinn niður og verður afturkræfur, hafi ekki komið fram sérstakar skýringar eða samið um annað.

14. gr.

Skilyrði fyrir styrkveitingu og ábyrgð styrkhafa.

Styrkur er veittur til tilgreindra verkefna samkvæmt umsókn. Styrkþega er óheimilt að framselja styrkinn eða ráðstafa til annarra aðila eða til annarra verkefna en getið er um í umsókn. Reikningar vegna verkefnisins skulu vera skýrt aðgreindir frá annarri starfsemi í bókhaldi.

Styrkþegi skal tilkynna sjóðnum án tafar ef breytingar verða á högum hans sem geta haft áhrif á framkvæmd verkefnisins. Ef aðilaskipti eða breytingar á högum skerða fyrirsjáanlega möguleika styrkþega á að ljúka verkefni á tilsettum tíma fellur réttur styrkþega til styrkveitingar niður.

Styrkþegi skal vinna verkið í samræmi við vinnuáætlun sem samþykkt er af sjóðnum. Styrkþegi skal leita fyrirfram samþykkis sjóðsins fyrir frávikum. Styrkur greiðist aðeins út ef gæði vinnu eru í samræmi við kröfur sjóðsins. Allur frágangur við verkefnið verður að vera til fyrirmyndar og í samræmi við lög, reglugerðir og samþykkt viðmið.

Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi svæðis og mannvirkjum (stórum sem smáum) er tengjast viðkomandi framkvæmd. Sjóðurinn tekur ekki á sig skuldbindingar við uppfærslu, viðhald eða viðgerðir á mannvirkjum sem tengjast styrkveitingu.

Styrkþegi ábyrgist með undirritun á samningi að öll lögbundin leyfi og samþykktir vegna fram­kvæmdar­innar liggi fyrir, sem og önnur þau gögn sem tiltekin voru í auglýsingu Fram­kvæmda­sjóðs ferðamannastaða um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum.

Myndir sem teknar eru skulu staðsettar þannig að auðvelt verði að taka samanburðarmyndir á sama stað síðar.

15. gr.

Vanefndir.

Brot styrkþega á gerðum samningum, eða öðrum skilmálum um úthlutun styrkja úr Fram­kvæmda­sjóði ferðamannastaða, veitir sjóðnum heimild til að stöðva greiðslur til styrkþega, fella niður styrk og krefjast fullrar endurgreiðslu þegar styrkþegi hefur fengið hluta styrksins greiddan fyrirfram. Brot á samningi getur einnig haft áhrif á möguleika styrkhafa til frekari styrk­veit­inga. Ferðamálastofa fer með mál vegna vanefnda samkvæmt málsmeðferðarreglum stjórn­sýslu­laga.

Mál er kunna að rísa út af ágreiningi í samningum skulu rekin fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.

16. gr.

Endurúthlutun styrkja.

Þegar samningur um styrk er felldur niður vegna vanefnda eða þegar samningur um styrkveitingu er ekki gerður skal veitt styrkfjárhæð renna til baka í sjóðinn til endurúthlutunar. Það sama gildir þegar styrkhafi er krafinn um endurgreiðslu þegar greidds styrks.

17. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 6. gr. laga nr. 75/2011 um Framkvæmdasjóð ferða­manna­staða, öðlast þegar gildi og fer úthlutun vegna auglýsingar sjóðsins frá 19. september 2015 fram á grundvelli hennar eftir því sem við á.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. janúar 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica