Brottfallnar reglugerðir

635/2002

Reglugerð um bann við rækjuveiðum NA af Sléttugrunni. - Brottfallin

635/2002

REGLUGERÐ
um bann við rækjuveiðum NA af Sléttugrunni.

1. gr.

Frá og með 3. september 2002 eru allar rækjuveiðar bannaðar á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:


1. 67°00'00 N – 16°40'00 V
2. 67°00'00 N – 16°25'00 V
3 67°09'00 N – 16°10'00 V
4. 67°08'00 N – 15°50'00 V
5. 66°45'00 N – 15°50'00 V
6. 66°45'00 N – 16°20'00 V



2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 29. ágúst 2002.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Snorri Rúnar Pálmason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica