Brottfallnar reglugerðir

85/1998

Reglugerð um breytingu á reglugerð um flutningaflug nr. 641/1991 með síðari breytingum. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um flutningaflug nr. 641/1991
með síðari breytingum.

1. gr.

                Grein 9.1.1.1. orðist svo:

                Þótt flughandbók geri einungis ráð fyrir einum flugmanni, skulu samt vera tveir flugmenn með tilskilin réttindi á viðkomandi flugvélartegund í flutningaflugi með farþega. Í þjónustuflugi með einshreyfils flugvélum, sem flogið er að degi til við sjónflugsskilyrði, er þó heimilt að í flugáhöfn sé einn flugmaður. Þessi grein tekur gildi 1. október 1999.

2. gr.

                Grein 9.1.1.1.1. orðist svo:

                Til 1. október 1999 gildir að í flutningaflugi með farþega skulu vera tveir flugmenn með tilskilin réttindi á viðkomandi flugvélartegund enda þótt flughandbók geri einungis ráð fyrir einum flugmanni, þegar um er að ræða:

                a)             reglubundið áætlunarflug og leigu- eða þjónustuflug milli Íslands og annarra landa

                                og

                b)            reglubundið áætlunarflug og leigu- eða þjónustuflug með:

                                i)              þotum,

                                ii)             skrúfuþotum með jafnþrýstibúnaði,

                                iii)            flugvélum sem gerðar eru til flutninga á fleiri en 9 farþegum.

3. gr.

                Reglugerð þessi tekur til íslenskra flugvéla og annarra flugvéla sem íslenskur flugrekandi notar eða ræður. Reglugerðin er sett samkvæmt 188. gr. laga nr. 34, 21. maí 1964 um loftferðir og staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 3. febrúar 1998.

Halldór Blöndal.

Halldór S. Kristjánsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica