Brottfallnar reglugerðir

807/1998

Reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um hækkun bóta almannatrygginga.

1.gr.

Upphæðir bóta samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 og samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993 skulu hækka frá 1. janúar 1999 að telja um 4,0% frá því sem þær voru í desember 1998.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 65. gr., sbr. 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 22. desember 1998.

Ingibjörg Pálmadóttir.

________________________

Jón Sæmundur Sigurjónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica