Brottfallnar reglugerðir

197/1996

Reglugerð um (22.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja, afgreiðslu þeirra og merkingu nr. 421/1988. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um (22.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja,

afgreiðslu þeirra og merkingu nr. 421/1988.

 

1. gr.

                Ákvæði í 16. gr. reglugerðarinnar um Bromazepamum breytist og verður svohljóðandi:

 

Efni

 

Hámarksmagn, sem ávísa

má með lyfseðli

Dæmi og undantekningar (merktar *)

                                 

 

Bromazepamum INN

360 mg

*Lexotan, töflur 3 mg: 100 stk.

*Lexotan, töflur 6 mg: 60 stk.

 

2. gr

                Svohljóðandi breyting verður í viðauka 3 við reglugerðina. (Listi yfir lyfseðilsskyld lyf):

                Econazolum INN, nema í lyfjaformum til útvortis notkunar, en eigi yfir 10 mg/g (1%).

 

3. gr.

                Svohljóðandi breyting verður í viðauka 4 við reglugerðina. (Listi yfir undanþágur frá lyfseðilsskyldu):

                Econazolum INN fellur brott.

 

4. gr.

                Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 44. gr lyfjalaga nr. 93/1994, öðlast gildi 1. apríl 1996.

 

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 22. mars 1996.

Ingibjörg Pálmadóttir.

Rannveig Gunnarsdóttir.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica