Brottfallnar reglugerðir

487/1987

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 170/1987, um þátttöku almannatrygginga í bifreiðakaupum fatlaðra, með breytingum nr. 430/1987. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð nr. 170/1987, um þátttöku almannatrygginga

í bifreiðakaupum fatlaðra, með breytingu nr. 430/1987.

 

1. gr.

Við ákvæði til bráðabirgða bætist nýr töluliður er verði 3. tl. og orðast svo: Tryggingaráð getur greitt hlutfallslegan mismun á fjárhæðum samkv. 5. gr. og á þeim hækkunum sem verða kunna á bifreiðum til og með 31. desember 1987.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 19. og 39. gr. stl. b. laga nr. 67/1971, um almannatryggingar með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 29. október 1987.

 

Guðmundur Bjarnason.

Páll Sigurðsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica