Brottfallnar reglugerðir

64/1991

Reglugerð um bráðabirgðatollafgreiðslur. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um bráðabirgðatollafgreiðslur.

I. KAFLI

Bráðabirgðatollafgreiðsla tollstjóra.

1. gr.

Geti innflytjandi vöru eigi lagt fram gögn þau sem áskilin eru í 18.-20. gr. tollalaga nr. 55/ 1987, með áorðnum breytingum, eða gögnum er svo áfátt, að fullnaðartollafgreiðsla getur eigi farið fram, er tollstjóra heimilt að taka við greiðslu til bráðabirgða að eftirtöldum skilyrðum uppfylltum:

1. Upplýsingar séu veittar um sendingarnúmer eða þann hluta sendingarnúmers sem kunnur er. Komi vörusending í flugi skal jafnframt veita upplýsingar um númer flugfarmbréfs.

2. Verðmæti sé tilgreint af hinum erlenda vörusendanda, t.d. í símskeyti, fjarriti (telex) eða myndriti (telefax) eða það upplýst á annan fullnægjandi hátt.

3. Vörutegund og vörumagn sé tilgreint.

4. Fyrir liggi heimildir þeirra stjórnvalda sem samþykkja þurfa innflutning tiltekinna vörutegunda (t.d. lifandi dýr, lyfja o.fl.).

2. gr.

Greiðsla samkvæmt 1. gr. skal vera útreiknuð aðflutningsgjöld af viðkomandi vörusendingu að viðbættum 25%, þó aldrei lægri fjárhæð en 7 500 kr.

Tollstjóri tiltekur ákveðinn frest til að ljúka fullnaðartollafgreiðslu og skal hann að jafnaði eigi vera lengri en 20 dagar frá komu vöru til landsins. Heimilt er að framlengja frestinn eftir beiðni innflytjanda ef sérstaklega stendur á. Að fresti liðnum er tollstjóra rétt að taka fjártrygginguna til lúkningar á gjöldum og er það fullnaðartollafgreiðsla.

II. KAFLI

Afhending farmflytjanda í neyðartilvikum.

3. gr.

Nú verður afgreiðslu samkvæmt I. kafla ekki við komið og er farmflytjanda þá heimilt að afhenda vöru þegar brýnir hagsmunir eru í húfi og afhending hennar þolir ekki bið vegna ástands eða eðlis vörunnar, enda liggi fyrir upplýsingar og, eftir atvikum, leyfi sem áskilið er í 1. gr. Heimild þessi getur m.a. tekið til lyfja og lækningatækja vegna ákveðinna tilgreindra nota, lifandi blóma og dýra, grænmetis, hráefnis til iðnaðarframleiðslu, vélavarahluta í atvinnutæki svo og hliðstæðra sendinga en hins vegar ekki til almennrar verslunarvöru.

4. gr.

Ríkistollstjóri ákveður gerð eyðublaðs fyrir beiðni um afhendingu neyðarsendinga. Skulu ákvæði tollalaga um aðflutningsskýrslu gilda um eyðublað þetta eftir því sem við getur átt.

Á eyðublaðinu skulu tilgreindar helstu upplýsingar um vöru þá sem óskað er afhendingar á, skuldbindingar innflytjanda og farmflytjanda um greiðslu aðflutningsgjalda af vörunni svo og samþykki tollstarfsmanns fyrir neyðarafgreiðslu samkvæmt reglum þessum.

5. gr.

Við afhendingu vöru skal farmflytjandi taka fjártryggingu að eigin mati til tryggingar greiðslu hins erlenda kaupverðs, aðflutningsgjalda og kostnaðar. Er hann ábyrgur gagnvart hinum erlenda eiganda og ríkissjóði standi innflytjandi ekki sjálfur í skilum, sbr. 6. gr.

6. gr.

Fullnaðartollafgreiðsla vöru skal fara fram innan 20 daga frá afhendingu hennar. Að þeim tíma loknum falla aðflutningsgjöld í eindaga og skal reikna dráttarvexti af þeim fram að greiðsludegi. Hafi skil eigi verið gerð innan 30 daga frá afhendingu vöru er tollstjóra heimilt að krefja farmflytjanda um öll áfallin gjöld, auk dráttarvaxta. Dráttarvextir skulu vera þeir sömu og Seðlabanki Íslands ákveður samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 25/1987.

Við tollafgreiðslu vöru skal innflytjandi leggja fram eintak af eyðublaði samkvæmt 4. gr. og fá áritun tollstjóra á það um að fullnaðartollafgreiðsla hafi farið fram.

7. gr.

Tollstarfsmaður skal ekki samþykkja neyðarafgreiðslu samkvæmt reglum þessum, sbr. 2. mgr. 4. gr., nema hann telji að skilyrða reglnanna séu fyrir hendi.

III. KAFLI

Almenn ákvæði.

8. gr.

Fyrir tollmeðferð vöru samkvæmt reglum þessum skal greiða til viðkomandi tollstjóra sérstakt afgreiðslugjald, 1000 kr. sem greiðist við fullnaðartollafgreiðslu vöru og rennur í ríkissjóð.

Innflytjandi skal jafnframt greiða allan kostnað sem leiða kann af vinnu tollstarfsmanna við nauðsynlegt tolleftirlit og tollskoðun vegna tollmeðferðar vöru samkvæmt reglum þessum.

9. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 21. gr. tollalaga nr. 55/1987, með áorðnum breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt eru felldar úr gildi reglur nr. 23/1982, um sama efni, með áorðnum breytingum.

Fjármálaráðuneytið, 7. febrúar 1991.

Ólafur Ragnar Grímsson.

Guðrún Ásta Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica