Brottfallnar reglugerðir

412/1996

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 251/1992, um tollfrjálsan farangur ferðamanna og farmanna við komu frá útlöndum, áfengisgjald, tóbaksgjald o.fl., með áorðnum breytingum. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð nr. 251/1992, um tollfrjálsan farangur ferðamanna

og farmanna við komu frá útlöndum, áfengisgjald, tóbaksgjald o.fl.,

með áorðnum breytingum.

 

1. gr.   

                Í stað orðanna "16 ár" í 2. mgr. 3. gr. kemur: 18 ár.

 

2. gr.

                Í stað orðanna "er viðkomandi þó heimilt að halda til viðbótar allt að þreföldu því magni sem þar greinir" í 1. mgr. 7. gr. kemur: er viðkomandi þó heimilt að flytja inn það magn sem umfram er.

 

3. gr.

                3. mgr. 7. gr. fellur brott.

 

4. gr.

                Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. og 5. tl. 5. gr. og 20. tl. 1. mgr. 6. gr. tollalaga nr. 55 30. mars 1987, með áorðnum breytingum, og 3. mgr. 1. gr. laga nr. 63 28. maí 1969, með áorðnum breytingum, öðlast gildi þegar í stað.

 

Fjármálaráðuneytinu, 22. júlí 1996.

 

F. h. r.

Guðrún Ásta Sigurðardóttir.

Bergþór Magnússon.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica