Brottfallnar reglugerðir

858/2003

Reglugerð um breytingu á reglugerð um stærð og þyngd ökutækja, nr. 528 4. september 1998. - Brottfallin

858/2003

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um stærð og þyngd ökutækja,
nr. 528 4. september 1998.

1. gr.

1. mgr. 3. gr. orðast svo:
Ökutæki má ekki vera lengra en hér segir:

a. Bifreið, önnur en hópbifreið 12,00 m
b. Hópbifreið með fleiri en tvo ása 15,00 m
c. Hópbifreið með tvo ása 13,50 m
d. Eftirvagn 12,00 m
e. Hópbifreið með eftirvagn 18,75 m
f. Vagnlest, bifreið með festi- eða hengivagni 20,00 m
g. Vagnlest, bifreið með tengivagni 22,00 m
h. Liðvagn 18,00 m


2. gr.

10. gr., sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 834/2001, breytist þannig:

a. Í stað orðsins "Skráningarstofan hf." í 1. mgr. kemur: Umferðarstofa.
b. Í stað dagsetningarinnar "15. nóvember 2003" kemur: 15. maí 2004.


3. gr.

Fjórða þankastrik í a. lið 15. gr. orðast svo:
- loftþrýstingur í hjólbarða sé takmarkaður að hámarki við 7 bör eða 102 psi í hjólbörðum framása og 6 bör eða 87 psi í hjólbörðum afturása, mælt í köldum hjólbarða eftir ástandi vegar, gerð ökutækis og kröfum veghaldara.


4. gr.

20. gr. breytist þannig:

a. Á eftir orðunum "tilskipun 96/53/EB" í 1. mgr. 20. gr. kemur: með síðari viðbót 2002/7/EB.
b. Á eftir orðunum "bls. 55-73" í 2. mgr. kemur: og 67. hefti 2002, bls 47.


5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 75. og 76. gr. umferðarlaga nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum, til innleiðingar á tilskipun 2002/7/EB, sem vísað er til í lið 15a, viðauka XIII, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2002, öðlast þegar gildi.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 20. nóvember 2003.

Björn Bjarnason.
Björn Friðfinnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica