Brottfallnar reglugerðir

528/1998

Reglugerð um stærð og þyngd ökutækja. - Brottfallin

528/1998

REGLUGERÐ
um stærð og þyngd ökutækja.

I. GILDISSVIÐ O.FL.

1. gr.


Ákvæði reglugerðar þessarar gilda um stærð og þyngd ökutækja í eftirfarandi flokkum: Hópbifreið I og II (M2, M3), sendibifreið (N1), vörubifreið I og II (N2, N3), svo og um eftirvagna þeirra ökutækja í flokkum I og II (O1, O2, O3, O4). Ákvæðin gilda einnig, eftir því sem við á, um dráttarvélar og vinnuvélar.

Ákvæðin gilda um ökutæki sem ætluð eru til notkunar á opinberum vegum, þ.e. þjóðvegum og öðrum vegum í eigu opinberra aðila, svo sem sveitarfélaga, sem ætlaðir eru almenningi til frjálsrar umferðar.

Ákvæðin gilda um notkun ökutækja hér á landi. Um stærð og þyngd ökutækja sem skráð eru hér á landi, en notuð í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES), gilda ákvæði tilskipunar nr. 96/53/EB og ákvæði viðkomandi ríkis.


2. gr.

Skilgreiningar.


Auk skilgreininga samkvæmt umferðarlögum og reglugerð um gerð og búnað ökutækja gildir eftirfarandi:

Samtengd ökutæki:

Vagnlest sem samanstendur af vélknúnu ökutæki og viðtengdum eftirvagni.

Eftirvagn:

Ökutæki sem hannað er til að vera dregið af öðru ökutæki og aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga:

a. Tengivagn: Eftirvagn á tveimur ásum eða fleiri sem tengdur er við dráttartæki án þess að lóðréttir kraftar geti flust á milli ökutækjanna.

b. Festivagn: Eftirvagn á einum ási eða fleiri sem tengdur er við dráttartæki þannig að hluti af þyngd eftirvagnsins hvílir á því.

c. Hengivagn: Eftirvagn á einum ási eða tvíása sem tengdur er við dráttartæki þannig að lóðréttir kraftar færast á milli ökutækjanna.

Liðvagn:

Hópbifreið sem sett er saman úr tveimur ósveigjanlegum hlutum sem innangengt er í innbyrðis og tengdir eru saman með liðamótum.

Jafnhitavagn:

Ökutæki með fastri eða færanlegri yfirbyggingu sem sérstaklega er búin til að flytja vöru við stillanlegt hitastig og hefur a.m.k. 45 mm þykka hliðarveggi að einangrun meðtalinni.

Leyfður ásþungi:

Mesti þungi sem flyst á veg af hjólum á einum ási eða ásasamstæðu ökutækis sem leyfður er í akstri.

Mesta leyfileg heildarþyngd:

Mesta þyngd ökutækis, eða samtengdra ökutækja, með ökumanni, farþegum, farmi og viðfestum vinnutækjum, sem leyfð er í akstri.

II. STÆRÐ ÖKUTÆKJA.

Lengd ökutækja.

3. gr.


Ökutæki má ekki vera lengra en sem hér segir:

a. Bifreið, önnur en hópbifreið
12,00 m
b. Hópbifreið
15,00 m
c. Eftirvagn
12,00 m
d. Vagnlest, ökutæki með festi- eða hengivagni
20,00 m
e. Vagnlest, ökutæki með tengivagni
22,00 m
f. Liðvagn
18,00 m

Lengd ökutækis skal mæld milli þeirra hluta sem standa lengst fram og lengst aftur. Þó skal mæla lengd eftirvagns frá hugsaðri lóðréttri línu í gegnum miðju tengihluta hans að aftasta hluta eftirvagnsins. Lárétt fjarlægð frá hugsaðri lóðréttri línu í gegnum miðju tengipinna að hvaða hluta sem er fremst á festivagninum má mest vera 2,04 m.

Bifreið, svo og samtengdum ökutækjum, skal vera hægt að aka innan snúningsboga með 12,50 m radíus í ytri hring og 5,30 m radíus í innri hring. Ákvæði þetta telst vera uppfyllt fyrir vagnlest með festivagni ef fjarlægð frá tengipinna vagnsins til miðju fræðilegs afturáss er ekki meiri en 7,90 m.


4. gr.

Fjarlægð mæld samhliða lengdarási vagnlestar með tengivagni frá fremsta hluta farmrýmis aftan við stýrishús að aftasta hluta tengivagnsins, að frádreginni fjarlægðinni milli afturenda dráttartækisins og framenda vagnsins, má mest vera 18,90 m.

Fjarlægð mæld samhliða lengdarási vagnlestar með tengivagni frá fremsta hluta farmrýmis aftan við stýrishús að aftasta hluta tengivagnsins má mest vera 19,65 m.

Fjarlægð milli aftasta áss bifreiðar og fremsta áss tengivagns má ekki vera minni en 3,00 m.


Breidd ökutækja.

5. gr.


Breidd sendibifreiðar og eftirvagns I má mest vera 2,50 m. Breidd vörubifreiðar, hópbifreiðar og eftirvagns II má mest vera 2,55 m. Breidd yfirbyggingar jafnhitavagns má mest vera 2,60 m.

Breidd vinnuvélar, eftirvagns hennar eða tengitækis til landbúnaðarstarfa eða vegavinnu má mest vera 3,30 m. Lögreglan getur bannað akstur slíkra ökutækja þegar sérstaklega stendur á.

Breidd ökutækis skal mæld milli þeirra hluta þess sem standa lengst til hliðar. Speglar eða ljósker, önnur en aðal-, vinnu- og hliðarljósker, svo og keðjur á hjólum, teljast ekki til breiddar þess.


6. gr.

Breidd eftirvagns eða tengitækis sem bifreið dregur má, auk þess sem tilgreint er í 1. mgr. 5. gr., ekki ná meira en 0,30 m út fyrir hvora hlið bifreiðar.


Hæð ökutækja.

7. gr.


Hæð ökutækis má mest vera 4,20 m.

Hæð ökutækis skal mæld hornrétt frá yfirborði vegar að þeim hluta þess sem hæst stendur.


Almenn ákvæði.

8. gr.


Mál sem tilgreind eru um lengd, breidd og hæð ökutækja eiga einnig við lausar yfirbyggingar og staðlaðar farmeiningar, t.d. gáma, svo og um farm ökutækisins.


9. gr.

Aftan á eftirvagni samtengdra ökutækja sem eru meira en 18,75 m að lengd skal vera a.m.k. eitt skilti með gulum fleti og rauðum jaðri, með áletruninni _LANGT ÖKUTÆKI", sbr. viðauka III. Óheimilt er að hafa þessi skilti aftan á eftirvagni samtengdra ökutækja sem eru 16,50 m eða minna að lengd.


Undanþágur.

10. gr.


Lögreglustjóri getur, að höfðu samráði við veghaldara, veitt undanþágu frá ákvæðum um mestu lengd, breidd og hæð ökutækja þegar brýn nauðsyn þykir vegna sérstakra flutninga. Leyfi skal að jafnaði því aðeins veita að flutningarnir geti ekki með góðu móti farið fram með öðrum hætti. Leyfið skal vera skriflegt og haft meðferðis meðan á flutningi stendur.

Leyfi má veita fyrir einstökum flutningi eða sem almennt leyfi í allt að eitt ár. Lögreglustjóri getur sett nánari skilyrði fyrir leyfi.

Þegar undanþága varðar flutning um tvö eða fleiri lögreglustjórnarumdæmi veitir lögreglustjóri þar sem ferð hefst leyfið.


Varúð.

11. gr.


Ökumaður fyrirferðarmikils ökutækis skal sýna sérstaka varúð og tillitssemi gagnvart annarri umferð. Hann skal og víkja greiðlega fyrir öðrum ökutækjum og nema staðar ef þörf krefur.

Þrátt fyrir ákvæði um hæð ökutækja hvílir sú skylda á ökumanni við akstur undir brú, í göngum, undir rafmagns- eða símalínu eða við svipaðar aðstæður að ganga úr skugga um að aksturinn geti farið fram án hættu eða óþæginda.


III. HEILDARÞYNGD OG ÁSÞUNGI ÖKUTÆKJA.

Almenn ákvæði.

12. gr.


Mesta leyfileg heildarþyngd og leyfður ásþungi ökutækja skal vera innan marka sem kveðið er á um í viðauka I. Á vegum sem ekki þola þá heildarþyngd og þann ásþunga sem tilgreindur er í viðauka I skal þyngdin vera innan marka sem kveðið er á um í viðauka II. Veghaldari skal gera og gefa út skrá yfir vegi sem falla undir ákvæði viðauka I eða viðauka II. Ef slík skrá er ekki gerð gilda ákvæði viðauka I.

Ásþyngd drifáss eða drifása ökutækis eða samtengdra ökutækja má ekki vera innan við 25% af mestri leyfilegri heildarþyngd lestaðs ökutækis eða samtengdra ökutækja.

Mesta leyfileg heildarþyngd og leyfður ásþungi ökutækis miðast við að loftþrýstingur í hjólbörðum sé ekki meiri en 8 bör eða 116 psi, mælt í köldum hjólbarða.

Heildarþyngd bifreiðar með fimm eða sex ásum má mest vera 32 tonn og gilda þá ákvæði liðar 1.3.3 í viðauka I.

Heildarþyngd bifreiðar á beltum má mest vera 12 tonn.


13. gr.

Ökutæki má aldrei hlaða þannig að heildarþyngd þess eða ásþungi verði meiri en heimilað er í skráningarskírteini þess.


14. gr.

Veghaldari getur takmarkað tímabundið mestu leyfðu heildarþyngd og leyfðan ásþunga ökutækja, sbr. 12. gr., miðað við burðarþol brúar eða vegar, svo sem á þeim árstíma þegar burðarþol vegar er skert vegna frostþíðuáhrifa.


Undanþágur.

15. gr.


Veghaldari getur leyft meiri heildarþyngd ökutækja á einstökum vegum eða vegarköflum og leyft allt að:

a. 44 tonn fyrir samtengd ökutæki sem samanstanda af þríása bifreið og tvíása eftirvagni, enda séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:

- hver ás nema framás bifreiðar sé á tvöföldum hjólum og með loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem telst jafngildur,

- samtengdu ökutækin séu knúin af a.m.k. tveimur sívirkum drifásum,

- þungi á framási sé ekki meiri en 7 tonn en á öðrum ásum ekki meiri en 10 tonn, og

- loftþrýstingur á hjólbarða sé takmarkaður að hámarki við 5 bör eða 70 psi, mælt í köldum hjólbarða eftir ástandi vegar, gerð ökutækis og kröfum veghaldara.

b. 49 tonn fyrir samtengd ökutæki sem samanstanda af þríása bifreið með þríása eftirvagni, enda séu uppfyllt:

- sömu skilyrði og tilgreind eru í a-lið, og

- a.m.k. 14 m séu milli fremsta og aftasta áss samtengdra ökutækja og a.m.k. 6 m frá aftasta ási ökutækis að fremsta ási festivagns.

Veghaldari getur bundið heimild þessa við ástand vega hverju sinni og gerð ökutækis.


16. gr.

Veghaldari getur veitt undanþágu frá ákvæðum um heildarþyngd og ásþunga ökutækis þegar brýn nauðsyn þykir vegna sérstakra flutninga. Leyfið skal að jafnaði því aðeins veita að flutningarnir geti ekki með góðu móti farið fram með öðrum hætti. Leyfið skal vera skriflegt og haft meðferðis meðan á flutningi stendur.

Veghaldari getur sett nánari skilyrði fyrir leyfi.


17. gr.

Brot á skilyrðum fyrir undanþágu eða akstur með þunga umfram heimild getur varðað afturköllun leyfis.


IV. LÖGREGLUAÐSTOÐ.

18. gr.


Sá sem fær undanþágu til flutninga samkvæmt 10. eða 16. gr. skal greiða fyrir lögregluaðstoð sem að mati lögreglustjóra er þörf á við flutninginn.

Lögreglustjóri getur krafist þess að kostnaður þessi verði greiddur fyrirfram eða að sett verði trygging sem hann metur gilda fyrir greiðslu hans.


V. ALMENN ÁKVÆÐI.

19. gr.


Ökutæki sem falla undir gildissvið tilskipunar nr. 96/53/EB, þ.e. hópbifreið I og II (M2, M3), vörubifreið I og II (N2, N3) og eftirvagnar þeirra í flokki II (O3, O4), og ætluð eru til aksturs í öðrum ríkjum EES, skulu búin varanlega festri plötu sem komið skal fyrir á aðgengilegum stað á ökutækinu. Á þessari plötu skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar, sbr. III. viðauka tilskipunarinnar:

1. Nafn framleiðanda.

2. Verksmiðjunúmer ökutækis.

3. Mesta leyfileg heildarþyngd ökutækis.

4. Mesta leyfileg heildarþyngd vélknúins ökutækis í vagnlest. Einnig hámarks heildarþyngd vagnlestar með festivagni í samsettum flutningum, ásamt 44 tonna mestri leyfilegri heildarþyngd í sviga ef um er að ræða þriggja ása dráttarbifreið.

5. Leyfður ásþungi, talið í réttri röð framan frá.

6. Mesta leyfileg þyngd sem flyst af festivagni á dráttarstól bifreiðar telst leyfður ásþungi fyrsta áss vagnsins.

7. Lengd (L).

8. Breidd (W).

9. Fjarlægð frá fremsta hluta bifreiðar til miðju tengibúnaðar (a). Ef fjarlægðin getur verið breytanleg skal gefa upp stærsta og minnsta gildi (amin og amax).

10. Fjarlægð frá miðju tengibúnaðar til aftasta hluta eftirvagns (b). Ef fjarlægðin getur verið breytanleg skal gefa upp stærsta og minnsta gildi (bmin og bmax).

Ef verksmiðjuplata skv. lið 04.10 (2) eða 04.50 (3) í reglugerð um gerð og búnað ökutækja er fyrir á ökutækinu nægir að bætt sé við hlið hennar plötu með upplýsingum skv. tilskipun nr. 96/53/EB, viðauka III. Bókstafir og tölustafir skulu vera a.m.k. 4 mm háir.

Í skráningarskírteini ökutækis sem fellur undir gildissvið tilskipunar nr. 96/53/EB og eingöngu er ætlað til aksturs innanlands skal skrá gildi skv. 9. og 10. tölul. 1. mgr.

Lengd samtengdra ökutækja skal mæla með ökutækin í beinni línu.

Mæld gildi í sambandi við ökutæki skulu vera í fullu samræmi við uppgefin gildi á áðurgreindum plötum eða í skráningarskírteini.


VI. GILDISTAKA.

20. gr.


Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 75. og 76. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, svo og með hliðsjón af 15.a.tölul. XIII. viðauka við EES samninginn (tilskipun 96/53/EB), öðlast þegar gildi.

EB gerðin sem vísað er til er birt í EES viðbæti við Stjórnartíðindi EB, 37. hefti 1997, bls. 55-73.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um stærð og þyngd ökutækja, nr. 425 19. júlí 1995, sbr. reglugerðir nr. 523 16. ágúst 1996 og nr. 316 28. maí 1998.


Ákvæði til bráðabirgða.

Nota má ökutæki eða vagnlest sem er lengri en leyft er í reglugerð þessari til 31. desember 1998 ef notkun ökutækisins var heimil samkvæmt eldri reglum.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 4. september 1998.

Þorsteinn Pálsson.

Ólafur W. Stefánsson.
VIÐAUKI I
Mesta leyfileg heildarþyngd og leyfður ásþungi á vegum.
1. Mesta leyfileg heildarþyngd
1.1. Ökutæki sem er hluti af samtengdu ökutæki
1.1.1. Tvíása tengivagn 18 tonn
1.1.2. Þríása tengivagn 24 tonn
1.2. Samtengd ökutæki  
 
 
 
 

40 tonn
40 tonn
-40 tonn
-44 tonn ef drifás er með tvöföldum hjólum og með loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem er viðurkenndur jafngildur innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB, eða þar sem hver drifás er með fjórum hjólum og hámarksþungi hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn

1.2.1. Fimm- eða sexása vagnlest (tengivagn)
a. Tvíása bifreið með þríása tengivagni
b. Þríása bifreið með tvíása tengivagni
c. Þríása bifreið með þríása tengivagni
1.2.2. Fimm- eða sexása vagnlest (festivagn)
a. Tvíása bifreið með þríása festivagni
b. Þríása bifreið með tvíása festivagni
c. Þríása bifreið með tví- eða þríása festivagni sem ber 40 feta ISO gám í samtengdum flutningum
d. Þríása bifreið með þríása festivagni
 
40 tonn
40 tonn
 
44 tonn
-40 tonn
-44 tonn ef drifás er með tvöföldum hjólum og með loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem er viðurkenndur jafngildur innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB, eða þar sem hver drifás er með fjórum hjólum og hámarksþyngd hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn
1.2.3. Fjórása vagnlest sem samanstendur af tvíása bifreið og tvíása tengivagni 36 tonn
1.2.4. Fjórása vagnlest sem samanstendur af tvíása bifreið og tvíása festivagni, ef fjarlægðin milli ása festivagns er:
1.2.4.1. - 1,3 m eða þar yfir, þó ekki yfir 1,8 m 36 tonn
1.2.4.2. - yfir 1,8 m 36 tonn
+ 2 tonn þegar ákvæði um mestu leyfilega heildarþyngd ökutækisins (18 tonn) og tvíása festivagnsins (20 tonn) eru virt og drifásinn er með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem er viðurkenndur jafngildur innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB
1.3. Bifreið 18 tonn
1.3.1. Tvíása bifreið
1.3.2. Þríása bifreið -25 tonn
-26 tonn ef drifásinn er með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem er viðurkenndur jafngildur innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB, eða ef hver drifás er með tvöföldum hjólum og hámarksþungi hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn
1.3.3. Fjórása bifreið með tveimur stýrisásum 32 tonn þegar drifásinn er með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem er viðurkenndur jafngildur innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB, eða ef hver drifás er með tvöföldum hjólum og hámarksþungi hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn
1.4. Þríása liðvagn 28 tonn
2. Leyfður ásþungi
2.1. Einn ás
Einn ás sem er ekki drifás
10 tonn
2.2. Tvíásasamstæða eftirvagns
Heildarásþungi á tvíásasamstæðu með fjarlægð milli ása (f):
2.2.1. - minni en 1 m (f<1,0 m), má ekki fara yfir 11 tonn
2.2.2. - frá 1,0 m og upp að 1,3 m (1,0 m <</FONT> f < 1,3 m), má ekki fara yfir 16 tonn
2.2.3. - frá 1,3 m upp að 1,8 m (1,3 m <</FONT> f < 1,8 m), má ekki fara yfir 18 tonn
2.2.4. -1,8 m og þar yfir (1,8 m <</FONT> f), má ekki fara yfir 20 tonn
2.3. Þríásasamstæða eftirvagns
Heildarásþungi á þríásasamstæðu með fjarlægð milli ása (f):
2.3.1. -1,3 m eða minna (f<</FONT>1,3 m) 21 tonn
2.3.2. - yfir 1,3 m og upp að 1,4 m (1,3 m < f <</FONT>1,4 m) 24 tonn
2.4. Drifás -11,5 tonn
2.4.1. Drifás ökutækja sem um getur í liðum 1.2.1. og 1.2.2.
2.4.2. Drifás ökutækja sem um getur í liðum 1.2.3., 1.2.4., 1.3. og 1.4. -11,5 tonn
2.5. Tvíásasamstæða bifreiðir
Samanlagður ásþungi á hverja tvíásasamstæðu með fjarlægð milli ása (f):
2.5.1. - innan við 1 m (f <1,0 m) má ekki fara yfir 11,5 tonn
2.5.2. - frá 1,0 m og allt að 1,3 m (1,0 m <</FONT> f <1,3 m) 16 tonn
2.5.3. - frá 1,3 m og allt að 1,8 m (1,3 m <</FONT> f < 1,8 m) -18 tonn
-19 tonn þegar drifásinn er með tvöföldum hjólum og loftfjöðrum eða öðrum fjöðrunarbúnaði sem er viðurkenndur jafngildur innan EES, sbr. viðauka II með tilskipun 96/53/EB, eða ef hver drifás er með tvöföldum hjólum og hámarksþungi hvers áss er ekki meiri en 9,5 tonn
3. Aðrir eiginleikar ökutækja
3.1. Mesta leyfileg heildarþyngd miðað við afstöðu ásanna. Heildarþyngd í tonnum á fjórása bifreið má ekki fara yfir sexfalda fjarlægð í metrum milli fremsta og aftasta áss ökutækisins.



VIÐAUKI II
Mesta leyfileg heildarþyngd og leyfður ásþungi á vegum
sem ekki falla undir viðauka I.
1. Mesta leyfileg heildarþyngd
1.1. Samtengd ökutæki
1.1.1. Allar vagnlestir 40 tonn
2. Leyfður ásþungi
2.1. Einn ás 10 tonn með tvöföldum hjólum
7 tonn með einföldum hjólum
2.2.1. Tvíásasamstæða
Innan við 1,0 m (f <1,0 m)
10 tonn með tvöföldum hjólum
7 tonn með einföldum hjólum
2.2.2. Tvíásasamstæða
Milli 1,0 m og 1,3 m (1,0 <</FONT> f < 1,3 m)
16 tonn með tvöföldum hjólum
11 tonn með einföldum hjólum
2.2.3. Tvíásasamstæða
Milli 1,3 m og 1,8 m (1,3 m <</FONT> f < 1,8 m)
16 tonn með tvöföldum hjólum
13,5 tonn með tvöföld hjól á öðrum ás
11 tonn með einföldum hjólum
2.3.1. Þríásasamstæða
Innan við 1,3 m (f < 1,3 m)
16 tonn með tvöföldum hjólum
11 tonn með einföldum hjólum
2.3.2. Þríásasamstæða
Milli 1,3 m og 1,4 m (1,3 m <</FONT> f < 1,4 m)
22 tonn með tvöföldum hjólum
16 tonn með einföldum

VIÐAUKI III

Merki fyrir langt ökutæki.


Skiltinu skal komið fyrir aftan á eftirvagni, sbr. 9. gr. Hæð skiltisins skal ekki vera meiri en svo að a.m.k. helmingur endurskinsflatar þess sé innan 1500 mm frá vegi. Skiltið skal ekki vera neðar en 350 mm frá vegi.



Word útgáfa af reglugerð

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica