Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

994/2007

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1287/2006 frá 10. ágúst 2006 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB að því er varðar skyldur fjármálafyrirtækja varðandi skýrsluhald, tilkynningar um viðskipti, gagnsæi á markaði, töku fjármálagerninga til viðskipta og hugtök sem eru skilgreind að því er varðar þá tilskipun.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2007 frá 27. apríl 2007 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af IX. viðauka við EES-samninginn um fjármálaþjónustu, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1287/2006 frá 10. ágúst 2006 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB að því er varðar skyldur fjármálafyrirtækja varðandi skýrsluhald, tilkynningar um viðskipti, gagnsæi á markaði, töku fjármálagerninga til viðskipta og hugtök sem eru skilgreind að því er varðar þá tilskipun.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB og jafnframt sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 1287/2006 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2., 26., 31. og 38. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti, og 40. gr. laga nr. 110/2007, um kauphallir, og öðlast gildi 1. nóvember 2007.

Viðskiptaráðuneytinu, 30. október 2007.

Björgvin G. Sigurðsson.

Jónína S. Lárusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.