Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 6. ágúst 2020

993/2019

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 742/2019 um veiðar á ígulkerum.

1. gr.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Svæðinu er skipt í suðaustur- og norðvestursvæði með línum sem dregnar eru í suður og austur úr hnitinu 65°13,00´N og 22°40,00´V.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar til þess að öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.