Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

985/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 765/2020 um veiðar á ígulkerum.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Allar veiðar á ígulkerum í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar, nema skipum sem hafa aflamark í ígulkerum, sbr. ákvæði laga um stjórn fiskveiða.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Svæðaskipting veiða á ígulkerum.
  2. 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. orðast svo: Skipum sem hafa aflamark í ígulkerum er heimilt að veiða ígulker á þeim tilteknu svæðum sem aflamarkið er bundið við.

3. gr.

3. og 4. gr. reglugerðarinnar ásamt fyrirsögnum falla brott og breytast greinanúmer reglugerðarinnar í samræmi við það.

4. gr.

1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar, sem verður 1. málsl. 1. mgr. 3. gr., orðast svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. er ráðherra heimilt að veita tímabundin leyfi til tilraunaveiða á ígulkerum utan veiðisvæða sem skilgreind eru í 2. gr. í samræmi við 13. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

5. gr.

Fyrirsögn 6. gr. reglugerðarinnar, sem verður 4. gr., orðast svo: Veiðarfæri.

6. gr.

2. málsl. 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar, sem verður 2. málsl. 1. mgr. 5. gr., orðast svo:

Skipstjóri skal gefa upp veiðisvæði, sbr. 2. gr. við vigtun afla á hafnarvog.

7. gr.

8. gr. reglugerðarinnar, sem verður 6. gr., orðast svo ásamt fyrirsögn:

Stjórnsýsluviðurlög.

Fiskistofu er heimilt að svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni vegna brota á ákvæðum laga og reglugerða, sem lúta að stjórn veiða og nýtingu nytjastofna, sbr. lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lög nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

8. gr.

Reglugerð þessi er gefin út með stoð í 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 8. og 30. gr. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og 8., 9., 13. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 30. ágúst 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.