1. gr.
Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 168/2012 frá 28. september 2012 um að bæta við IX. viðauka EES-samningsins (fjármálaþjónusta) reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 584/2010 frá 1. júlí 2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar snið og inntak staðlaðrar tilkynningar og staðfestingar á verðbréfasjóði, notkun rafrænna samskipta milli lögbærra yfirvalda vegna tilkynninga og verklagsreglur vegna sannprófunar á staðnum og rannsókna sem og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 584/2010 frá 1. júlí 2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar snið og inntak staðlaðrar tilkynningar og staðfestingar á verðbréfasjóði, notkun rafrænna samskipta milli lögbærra yfirvalda vegna tilkynninga og verklagsreglur vegna sannprófunar á staðnum og rannsókna sem og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 10. október 2013, bls. 25.
3. gr.
Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 584/2010 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 64. gr. laga um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. október 2013.
F. h. r.
Tómas Brynjólfsson.
Guðbjörg Eva H. Baldursdóttir.