Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. júlí 2021

981/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja.

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður á fylgiskjalinu "Hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands" með reglugerðinni:

Á flokknum 09 Hjálpartæki við persónulega aðhlynningu og fatnaður verður eftirfarandi breyting:

Fyrsta málsgrein í flokknum 0930 Bleiur orðast svo:

Bleiur eru veittar á grundvelli innkaupaheimildar til eins, fimm eða tíu ára í senn. Að jafnaði greiðir stofnunin ekki bleiur fyrir börn yngri en þriggja ára en yngri börn en þriggja ára geta þó fengið undanþágu vegna stómaaðgerðar eða klofins hryggs.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 3. nóvember 2014.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Sveinn Magnússon.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.