Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

979/2015

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (V).

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina, samanber bókun 47 við EES-samninginn.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:

  1. Tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir og skráning á þessum vinnsluaðferðum í skrár sem halda skal fyrir víngeirann:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1251/2013, frá 3. desember 2013 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 16/2015, 19. mars 2015, bls. 316), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir og á reglugerð (EB) nr. 436/2009 að því er varðar skráningu á þessum vinnsluaðferðum í skrár sem halda skal fyrir víngeirann, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 33/2015, frá 25. febrúar 2015, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  2. Aukning á hámarksheildarinnihaldi brennisteinsdíoxíðs ef það er nauðsynlegt vegna loftslagsskilyrða:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 347/2014, frá 4. apríl 2014 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 16/2015, 19. mars 2015, bls. 900), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar aukningu á hámarksheildarinnihaldi brennisteinsdíoxíðs ef það er nauðsynlegt vegna loftlagsskilyrða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 33/2015, frá 25. febrúar 2015, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  3. Verndaðar upprunatáknanir, verndaðar, landfræðilegar merkingar, hefðbundin heiti, merking og framsetning tiltekinna vínafurða:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 753/2013, frá 2. ágúst 2013 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 34/2015, 18. júní 2015, bls. 297), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 607/2009 þar sem mælt er fyrir um tilteknar, ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 479/2008 um verndaðar upprunatáknanir og landfræðilegar merkingar, hefðbundin heiti, merking og framsetning tiltekinna vínafurða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2015, frá 30. apríl 2015, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 16. október 2015.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.