Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Stofnreglugerð

974/2011

Reglugerð um gildistöku ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2006/968/EB um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 21/2004 að því er varðar viðmiðunarreglur og aðferðir við rafræna auðkenningu sauðfjár og geita.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2006/968/EB um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 21/2004 að því er varðar viðmiðunarreglur og aðferðir við rafræna auðkenningu sauðfjár og geita. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007 frá 1. maí 2010.
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2008/337/EB um breytingu á ákvörðun 2006/968/EB um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 21/2004 að því er varðar viðmiðunarreglur og aðferðir við rafræna auðkenningu sauðfjár og geita. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2010 frá 1. maí 2010.

2. gr.

Ákvarðanir framkvæmdastjórnarinnar nr. 2006/968/EB og nr. 2008/337/EB eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Tilvísanir í gerðum sem tilgreindar eru í 1. gr. er varða ákvæði í hinni sameiginlegu landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins (CAP) gilda ekki við framkvæmd reglugerðar þessarar.

4. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl. og öðlast gildi 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. október 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.