Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Stofnreglugerð

971/2011

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 644/2005 um leyfi fyrir sérstöku auðkenningarkerfi fyrir nautgripi sem eru haldnir í menningarlegum og sögulegum tilgangi á samþykktum stöðum eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1760/2000.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2009 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 644/2005, um leyfi fyrir sérstöku auðkenningarkerfi fyrir nautgripi sem eru haldnir í menningarlegum og sögulegum tilgangi á samþykktum stöðum eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 644/2005 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6, frá 5. febrúar 2010, bls. 256.

3. gr.

Tilvísanir reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 644/2005 er varða ákvæði í hinni sameiginlegu landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins (CAP) gilda ekki við framkvæmd reglugerðar þessarar.

4. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl. og öðlast gildi 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. október 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.