Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

963/2015

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr. Gildistaka tiltekinna EES-gerða.

Við 1. gr. bætast við fjórir töluliðir, 29., 30., 31. og 32. liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 317/2014 frá 27. mars 2014 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi efnum sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), nánar tiltekið CMR efnasambönd, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 180/2015 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 371-374.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 474/2014 frá 8. maí 2014 sem breytir XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), er varðar 1,4-díklórbenseni, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2014 frá 24. október 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 4. desember 2014, bls. 501-504.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/628 frá 22. apríl 2015 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi blýi og efnasamböndum þess) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2015 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 375-378.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/326 frá 2. mars 2015 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi fjölhringa, arómatískum vetniskolefnum og þalötum) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2015 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 379-381.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 317/2014 frá 27. mars 2014 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi efnum sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 474/2014 frá 8. maí 2014 sem breytir XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/628 frá 22. apríl 2015 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi blýi og efnasamböndum þess) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/326 frá 2. mars 2015 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi fjölhringa, arómatískum vetniskolefnum og þalötum) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tl. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 12. október 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.