Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

954/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 584/2001, um úrræði til að bregðast við greiðsluvanda vegna lána Íbúðalánasjóðs.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður sem verður svohljóðandi: Úrræðum samkvæmt reglugerð þessari verður einnig beitt til að bregðast við greiðsluvanda lántakanda lána sem Íbúðalánasjóður hefur yfirtekið af fjármálastofnunum á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga nr. 44/1998, um húsnæðismál.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður sem orðast svo: Einnig er heimilt að fresta greiðslum afborgana af höfuðstól þannig að eingöngu séu greiddir vextir og verðbætur af vöxtum.
  2. Við 3. mgr. 10. gr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Skilmálabreyting tekur gildi þegar þinglýstur viðauki hefur borist Íbúðalánasjóði.

3. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 7. mgr. 48. gr. laga nr. 44/1998, um húsnæðismál, öðlast þegar gildi.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. október 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Geir Ágústsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.