Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

949/2014

Reglugerð um sérstök línu- og netasvæði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 4. nóvember 2014 til og með 31. desember 2014, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga sem markast af eftirfarandi punktum:

  1. 63°49,30´ N - 021°39,10´ V
  2. 63°30,00´ N - 021°39,00´ V
  3. 63°40,00´ N - 022°32,00´ V
  4. 63°48,70´ N - 022°32,00´ V
  5. 63°49,80´ N - 022°04,20´ V

2. gr.

Frá og með 4. nóvember 2014 til og með 30. apríl 2015, eru allar veiðar með fiski­botnvörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem markast af eftirfarandi punktum:

  1. 64°20,00´ N - 023°08,00´ V                
  2. 64°04,90´ N - 022°43,60´ V
  3. 64°02,00´ N - 022°44,40´ V
  4. 64°02,00´ N - 023°42,00´ V
  5. 64°20,00´ N - 023°42,00´ V

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica