Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

946/2013

Reglugerð um (25.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum, er breytt í samræmi við við­auka þessarar reglugerðar.

2. gr.

Að því er varðar athuganir, sem hófust fyrir 1. janúar 2014, er heimilt að beita reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru, með síðari breytingum, eins og hún var fyrir gildis­töku þessarar reglugerðar.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framkvæmdartilskipun framkvæmda­stjórnar­innar 2012/8/ESB um breytingu á tilskipun 2003/90/EB um framkvæmdar­ráðstaf­anir með tilliti til 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/53/EB að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrða vegna athugana á tilteknum yrkjum nytja­plantna í landbúnaði, sem var tekin inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2013 frá 4. maí 2013, og til inn­leið­ingar á framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2012/44/ESB um breyt­ingu á til­skip­unum 2003/90/EB og 2003/91/EB um framkvæmdar­ráðstaf­anir með tilliti til 7. gr. til­skip­ana ráðsins 2002/53/EB og 2002/55/EB að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytja­plantna í landbúnaði og grænmetistegunda, sem var tekin inn í III. kafla I. viðauka við EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2013 frá 15. júní 2013.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin tekur þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. október 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica