Fara beint í efnið

Prentað þann 3. maí 2024

Breytingareglugerð

945/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þráðlausan fjarskiptabúnað, nr. 944/2019.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/30 frá 29. október 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/53/ESB að því er varðar beitingu grunnkrafnanna, sem um getur í d-, e- og f-lið 3. mgr. 3. gr. þeirrar tilskipunar, til verndar netkerfis, persónuverndar og verndar gegn svikum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2022, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 8, 26. janúar 2023, bls. 272-276.

2. gr.

4. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

3. gr.

Í stað heitisins "Póst- og fjarskiptastofnun" í 1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni komi, í viðeigandi beygingarfalli: Fjarskiptastofa.

4. gr.

16. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Verði rekstraraðili þráðlauss fjarskiptabúnaðar ekki við ósk Fjarskiptastofu um upplýsingar í tengslum við skoðun einstakra mála, fyrirmælum Fjarskiptastofu sem koma fram í ákvörðunum stofnunarinnar eða fari ekki eftir niðurstöðu mats stofnunarinnar á búnaði, getur Fjarskiptastofa lagt á hann dagsektir í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.

5. gr.

17. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 103. gr. fjarskiptalaga, nr. 70/2022, sbr. p-lið 1. mgr. ákvæðisins.

6. gr.

18. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ákvarðanir Fjarskiptastofu á grundvelli reglugerðar þessarar er heimilt að kæra til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála skv. lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.

7. gr.

1. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi er sett með heimild í 33. gr., sbr. 107. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022 og 27. gr. laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995 og öðlast þegar gildi.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 33. gr., sbr. 107. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022 og öðlast þegar gildi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. júlí 2023.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ásdís Halla Bragadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.