Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

929/2015

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/407 frá 11. mars 2015 um að samþykkja própan-2-ól sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1, 2 og 4, sem vísað er til í tl. 12xx, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2015, þann 30. apríl 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 788-790.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/416 frá 12. mars 2015 um að samþykkja dínótefúran sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12xx, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2015, þann 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 526-528.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/417 frá 12. mars 2015 um að samþykkja Bacillus sphaericus 2362, sermigerð H5a5b, stofn ABTS1743, sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12xx, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2015, þann 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 529-531.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/419 frá 12. mars 2015 um að samþykkja tólýlflúaníð sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21, sem vísað er til í tl. 12xx, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2015, þann 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 862-865.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/407 frá 11. mars 2015 um að samþykkja própan-2-ól sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1, 2 og 4.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/416 frá 12. mars 2015 um að samþykkja dínótefúran sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/417 frá 12. mars 2015 um að samþykkja Bacillus sphaericus 2362, sermigerð H5a5b, stofn ABTS1743, sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/419 frá 12. mars 2015 um að samþykkja tólýlflúaníð sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. október 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.